Örvar, sem kemur frá Sandgerði, gaf út sitt fyrsta lag í fyrra en síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Örvar gaf út lagið „Alltaf“ í apríl en það er fyrsta smáskífan af komandi plötu sem mun líta dagsins ljós í sumar.
„Lagið var tekið upp í CBO Studio og er pródúserað af Pétri Kolka félaga mínum. Lagið snýst um að vera samkvæmur sjálfum sér sama hvaða aðstæðum þú ert í og ekki vera að pæla í því hvað öðru fólki finnst um þig og þínar aðferðir. Við höfum verið að vinna í myndbandi við „Alltaf“ sem er væntanlegt í maí.“
Smáskífan hefur fengið virkilega góðar viðtökur og verður spennandi að heyra meira frá þessum hæfileikaríka rappara.