Helmingur landsmanna (50%) er andvígur því að þriðji orkupakki ESB taki gildi hér á landi en tæplega þriðjungur, eða 31 prósent, er því fylgjandi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar MMR um afstöðu almennings til þriðja orkupakkans.
Könnunin sem um ræðir var framkvæmd dagana 30. apríl til 3. maí og var heildarfjöldi svarenda 941 einstaklingur, 18 ára og eldri.
Helstu niðurstöður eru svohljóðandi:
- Helmingur landsmanna (50%) kvaðst andvígur því að þriðji orkupakki ESB taki gildi á Íslandi en tæplega þriðjungur (31%) kvaðst fylgjandi.
- Lítill stuðningur við þriðja orkupakkann virtist meðal stuðningsmanna ríkisstjórnarflokkanna en tæplega helmingur þeirra (49%) kvaðst andvígur innleiðingu þriðja orkupakkans og rúmur fjórðungur (27%) fylgjandi.
- Stuðningsfólk Flokks fólksins og Miðflokksins reyndist að mestu andvígt orkupakkanum (98%) en 91% þeirra kváðust mjög andvíg. Stuðningsfólk annarra stjórnarandstöðuflokka (Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar) reyndist hins vegar nokkuð samstíga í stuðningi sínum við þriðja orkupakkann og kváðust 59% þeirra fylgjandi innleiðingu hans (31% mjög fylgjandi).
- Svarendur sem kváðust hlynntir inngöngu í Evrópusambandið reyndust líklegri til að segjast fylgjandi innleiðingu orkupakkans (64%) heldur en þau sem kváðust andvíg inngöngu í ESB (11%).
Niðurstöður MMR.