fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Fókus

Hatarar koma fundarstjóra aftur í uppnám: „Hún var að spyrja okkur“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Fimmtudaginn 9. maí 2019 14:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Annarri æfingu Hatara á stóra sviðinu í Tel Aviv lauk fyrir stundu, en sveitin stígur á svið í fyrri undanriðlinum í Eurovision næstkomandi þriðjudag. Eftir æfinguna svöruðu Hataraliðar spurningum blaðamanna eins og venja er og streymdi FÁSES, félag áhugafólks um söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, fundinum í beinni á Facebook.

Blaðamannafundurinn byrjaði með sprengju. Hljómsveitin var spurð út í hvort þeim þætti tjáningarfrelsi þeirra sett skorður. Því svaraði fundarstjóri og neitaði því fyrir þeirra hönd.

„Hún var að spyrja okkur,“ sagði þá Klemens.

Er þetta í annað sinn sem Hatarliðar koma fundarstjóranum í uppnám, en á blaðamannafundinum síðasta sunnudag komst sami fundarstjóri í uppnám þegar að blaðamenn spurðu Hataraliða um átökin á milli Ísrael og Palestínu.

Þá voru Hataraliðar einnig spurðir, á þessum öðrum blaðamannafundi, hvaðan þeir sækja innblástur í tónlistinni. Uppskáru þeir mikinn hlátur er þeir töldu upp nöfn á rokksveitum í bland við persónur eins og Theresu May, Donald Trump, Britney Spears og Spice Girls. Matthías og Klemens, söngvarar Hatara, voru einnig spurðir út í heimsókn sína til Hebron síðustu helgi.

„Við getum ekki svarað frjálslega því ástandið þar er mjög pólitískt, en vinur okkar sagði okkur að við þyrftum að fara þangað til að upplifa það sem er að gerast í þessu landi,“ sagði Matthías þá og Klemens bætti við að það hefði opnað augu hans fyrir ýmsu að heimsækja Hebron.

Hægt er að horfa á blaðamannafundinn hér:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Goðsögnin Bob Newhart er látinn

Goðsögnin Bob Newhart er látinn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Auglýsing um Osló með Halfdan í fararbroddi slær í gegn

Auglýsing um Osló með Halfdan í fararbroddi slær í gegn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Maðurinn sem var fyrirmyndin að Stjána bláa

Maðurinn sem var fyrirmyndin að Stjána bláa
Fókus
Fyrir 5 dögum

Atli tilnefndur til EMMY-sjónvarpsverðlauna

Atli tilnefndur til EMMY-sjónvarpsverðlauna