Matargyðjan Linda Ben á von á sínu öðru barni, en hún deildi gleðifregninni með fylgjendum sínum á miðvikudag. „Loksins get ég deilt með ykkur gleðifréttunum sem mig er búið að langa að segja ykkur svo lengi! Við eigum von á litlu kríli í byrjun nóvember og erum gjörsamlega að springa úr hamingju!“
Linda og maður hennar, Ragnar Einarsson, eiga fyrir fimm ára gamall son. Linda er menntaður lífefnafræðingur úr Háskóla Íslands og heldur úti heimasíðunni lindaben.is, þar sem hún deilir hollum og góðum uppskriftum með fylgjendum þar og á samfélagsmiðlum. Parið hefur einnig verið að búa sér heimili í Mosfellsbæ og hefur Linda verið dugleg að deila myndum og góðum ráðum frá framkvæmdunum. Nú styttist í að heimilið verði tilbúið og vonandi næst það fyrir komu barnsins.
Fókus óskar fjölskyldunni innilega til hamingju með bumbubúann.