Sheffield United hefur tryggt sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni á ný í fyrsta sinn í 12 ár.
Þetta varð staðfest í dag eftir leik Leeds United og Aston Villa en Leeds var eina liðið sem gat náð öðru sætinu af Sheffield.
Leeds gerði hins vegar 1-1 jafntefli við Villa og er nú fimm stigum frá öðru sæti þegar ein umferð er eftir.
Sheffield fer því upp ásamt liði Norwich sem tryggði sér farseðlinn í gær með sigri á Blackburn.
Leeds, West Brom og Aston Villa munu berjast um síðasta sætið í umspili sem og Derby, Middlesbrough eða Bristol City sem eiga möguleika á seinast umspilssætinu.