Frítt verður í sundlaugar í Reykjavík og Fjölskyldu og húsdýragarðinn fyrir alla, allan daginn á morgun sumardaginn fyrsta 25. apríl 2019. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Reykjavíkurborg hefur sent frá sér. Þar segir að skátarnir verði með hoppukastala og allskonar skemmtilegt skátafjör við sundlaugarnar og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á eftirfarandi tímum:
Árbæjarlaug kl. 13:00-16:00
Fjölskyldu- og húsdýragarð kl. 11:00-14:00
Grafarvogslaug kl. 13:00-16:00
Breiðholtslaug kl. 10:00-12:00
Sundhöll Reykjavíkur kl. 13:00-16:00
Laugardalslaug kl. 13:00-16:00
Vesturbæjarlaug kl. 11:00-13:00
Þá verða Víkingar með sumarhátíð í Bústaðahverfi, þar verður boðið upp á heitar pylsur, farið í skrúðgöngu, skemmtidagskrá í Bústaðakirkju og hopp og hí í félagsheimilinu Víkinni. Sjá dagskrá Sumardagsins fyrsta í Bústaðahverfi.
Í Grafarholti hefst Framhlaupið í Leirdalnum klukkan 10.00, gestir fá að spreyta sig á frisbígolfi, klukkan 11.00 verður dýrablessun í Guðríðarkirkju og 12.30 verður skrúðganga sem leggur af stað frá Sæmundarskóla, með lúðrasveit Grafarvogs og Grafarholts í broddi fylkingar. Boðið verður upp á alls kyns skemmtiatriði í Guðríðarkirkju, Friðrik Dór tekur lagið og haldið verður bingó. Grafarholtsbúar kynnið ykkur dagskrá Sumardagsins fyrsta í Grafarholti.