fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Fókus

Bestu íslensku bíómyndirnar: 11. til 8. sæti

Kristján Guðjónsson
Þriðjudaginn 28. febrúar 2017 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslensk kvikmyndagerð á sér stutta en áhugaverða sögu. Aðeins tæplega fjörtíu ár eru síðan framleiðsla á íslenskum kvikmyndum fór að taka almennilega við sér og íslenskar myndir að koma reglulega fyrir augu kvikmyndaunnenda. Á nýju árþúsundi hefur íslensk kvikmyndagerð blómstrað, íslenskar myndir náð máli og notið virðingar víða um heim. Nú er kominn tími til að líta yfir farinn veg og hefur DV fengið 18 sérfræðinga til að velja bestu íslensku bíómyndina frá upphafi. Á Topp 11 listanum er tíu myndir eftir karlleikstjóra en aðeins einni mynd er leikstýrt af konu, elsta myndin er 35 ára en tvær nýjustu eru frá árinu 2015, þrjár af ellefu bestu myndunum eru byggðar á skáldsögum, Dagur Kári leikstýrir tveimur myndum á listanum en Friðrik Þór á flestar, þrjár talsins.


10–11. sæti – Englar alheimsins (2000)

Þessi kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar er byggð á samnefndri bók Einars Más Guðmundssonar um glímu bróður hans við geðhvarfasýki. Bókin fékk á sínum tíma Menningarverðlaun DV og Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og hefur æ síðan verið ein vinsælasta skáldsaga landsins. Í mynd Friðriks Þórs leikur Ingvar E Sigurðsson Pál, ungan og hæfileikaríkan mann sem missir smám saman tökin á lífi sínu og er sendur á Klepp þar sem fyrir er skrautlegt persónugallerí. Þrátt fyrir erfiðleikana myndast sterk vináttubönd meðal vistmannanna á geðsjúkrahúsinu.

Myndin hjálpaði til við að draga upp á yfirborðið umræður um einn jaðarsettasta hóp íslensks samfélags, geðveika, auk þess að varpa ljósi á mismunandi birtingarmyndir andlegra veikinda – sem er svo snilldarlega fangað í orðatiltæki úr bókinni: „Kleppur er víða.“ Hljómsveitin Sigur Rós gerði magnaða tónlist fyrir myndina, einmitt á sama tíma og sveitin var að öðlast heimsfrægð fyrir plötuna Ágætis byrjun.


10–11. sæti – Hrafninn flýgur (1984)

Hrafninn flýgur er þriðja kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar í fullri lengd og fyrsta víkingamyndin sem hann gerði – en slíkar myndir áttu eftir að eiga hug hans allan á næstu árum. Jakob Þór Einarsson leikur Írann Gest sem fer til Íslands til að hefna sín á víkingum sem myrtu foreldra hans og rændu barnungri systur. Myndin hefur verið notuð í kennslu víða á Norðurlöndum og því geta margir Skandinavar þulið upp fleygar línur úr myndinni og þá allra helst: „Þungur hnífur“.

„Ein sú fyrsta og enn ein sú besta,“ segir Valur Gunnarsson, rithöfundur og kvikmyndagagnrýnandi. „Fyrsti íslenski víkingavestrinn segir einfalda sögu um hefnd en með tvisti sem Hollywood á erfitt með að toppa. Og hún snýr Íslandssögunni á haus, við erum jú ekki bara afkomendur kónga heldur líka þræla. Hefur elst undarlega vel, fyrir utan tónlistina. Kannski hefur enginn hér lagt í að gera víkingamyndir eftir Hrafn vegna þess hve erfitt er að stíga út úr skugga hans.“

Arnar Elísson kvikmyndafræðingur telur myndina einnig eina þá bestu í íslenskri kvikmyndasögu: „Besta víkingamynd allra tíma er íslensk og kom út árið 1984. Hrafninn flýgur er íslenskur vestri um mann sem ferðast til Íslands til þess að hefna dauða foreldra sinna. Hrafninn flýgur er gerð með innblæstri frá japönsku samúræjamyndum Akira Kurusawa og ítölsku spagettívestrum Sergio Leone. Hrafn Gunnlaugsson er augljóslega að herma eftir sínum uppáhaldskvikmyndum og það skilar sér á tjaldið með ofursvölum persónum og spennandi söguþræði. Myndin lítur rosalega vel út, það er uppreisnarfílíngur í Hrafni sem kýs stíl í stað sögulegrar nákvæmni. Það er óhugsandi að nokkur geti gert víkingamynd í dag án þess að verða fyrir áhrifum frá Hrafninn flýgur.“

Það er óhugsandi að nokkur geti gert víkingamynd í dag án þess að verða fyrir áhrifum frá Hrafninn flýgur.


9. sæti – Með allt á hreinu (1982)

Eina tónlistarmyndin á Topp 11 listanum er Stuðmannamyndin Með allt á hreinu, ein ástsælasta gamanmynd íslenskrar kvikmyndasögu. Myndin naut fádæma vinsælda í kvikmyndahúsum eftir að hún var frumsýnd í desember 1982 – og hefur oft verið kölluð vinsælasta íslenska bíómyndin. Myndin fjallar um hljómsveit sem vegna ósættis klofnar í tvær kynjaskiptar fylkingar sem ferðast í kjölfarið um Ísland og keppast um hylli þjóðarinnar. Þetta er „feel-good“ tónlistargamanmynd sem aldrei virðist úreldast. Ekki aðeins sívinsæl popplögin sem heyrðust fyrst í myndinni heldur fjölmargar persónur og brandarar hafa lifað með þjóðinni æ síðan, til að mynda var „Inn, út, inn, inn, út,“ valinn besti frasi íslenskrar kvikmyndasögu á Edduverðlaunahátíðinni 2014.

„Fyrir utan stórkostleg tónlistaratriði og skemmtilega karaktera þá er hér um að ræða bestu íslensku vegamyndina,“ segir Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona. „Hún er full af fjöri og hressandi ungæðishætti auk þess sem allt flæði í henni er sérlega gott, aldrei dauður punktur. Það hlýtur að vera gæðamerki að maður nenni að horfa á kvikmynd aftur og aftur, og það áratugum síðar.“

Fyrir utan stókostleg tónlistaratriði og skemmtilega karaktera þá er hér um að ræða bestu íslensku vegamyndina.


8. sæti – Hrútar (2015)

Kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson var fyrsta íslenska myndin til að hljóta stór verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes þegar hún hlaut Un Certain Regard, verðlaun sem eru ætluð sérstaklega frumlegum og óvenjulegum kvikmyndum. Myndin fjallar um tvo sauðfjárbændur á sjötugsaldri sem búa hlið við hlið í afskekktum dal á Norðurlandi en talast ekki við.

„Kvikmyndin Hrútar eftir Grím virðist einföld við fyrstu sýn, en í henni má finna dýpri tengingar þegar grannt er skoðað,“ segir Oddný Sen kvikmyndafræðingur. „Hún lýsir tveimur andhetjum á listavel gerðan hátt, andhetjum sem virðast að einhverju leyti standa utan við raunveruleikann, en sýna ást bóndans á búfénaði sínum og ævistarfi. Magnað lokaatriðið tengir áhorfandann við heim töfra og lýsir kærleika sem á einhvern hátt verður alheimslegur.“

Tómas Valgeirsson, kvikmyndagagnrýnandi Fréttablaðsins, segir einnig að allt umtalið og verðlaunahlassið sé vel verðskuldað: „Ekki er það síður vegna þess að þeir Siggi Sigurjóns og Teddi Júl eru geysilega sterkir saman sem sauðbændabræður sem hafa ekki spjallað í um það bil 40 ár. Hvert augnaráð leikaranna kemur einhverju til skila og nýtast þau sem innri rödd karaktera oft, enda fámál en kuldalega afslöppuð saga sem fjallar einmitt um tengingarleysi, biturleika og þrjósku. Húmorinn kemur hér allur frá karakterunum og tónninn léttur en tragískur. Hrútar er svo sem ekki allra en hún einbeitir sér sterkt að því sem hún hefur og af mikilli sál. Óaðfinnanleg tæknivinnsla og klisjulaus framvinda innsiglar svo dílinn.“

Magnað lokaatriðið tengir áhorfandann við heim töfra og lýsir kærleika sem á einhvern hátt verður alheimslegur.


Álitsgjafar DV

Anna María Karlsdóttir kvikmyndaframleiðandi, Arnar Elísson kvikmyndafræðingur, Ásgeir Ingólfsson menningarblaðamaður, Baldvin Z kvikmyndagerðarmaður, Björn Þór Vilhjálmsson lektor í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands, Elsa G. Björnsdóttir kvikmyndagerðarkona, Heiða Jóhannsdóttir aðjúnkt í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands, Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona, Hugleikur Dagsson teiknimyndasögu- og sjónvarpsþáttagerðarmaður, Hrönn Marinósdóttir stjórnandi Reykjavík International Film Festival, Kristinn Þórðarson kvikmyndaframleiðandi, Maríanna Friðjónsdóttir fjölmiðlari, Nína Richter sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, Oddný Sen kvikmyndafræðingur og verkefnastjóri kvikmyndafræðslu í Bíó Paradís, Tómas Valgeirsson kvikmyndagagnrýnandi Fréttablaðsins, Valur Gunnarsson rithöfundur og kvikmyndagagnrýnandi, Þóra Hilmarsdóttir kvikmyndagerðarkona, Þórir Snær Sigurðarson umsjónarmaður kvikmyndaþáttarins Hvíta Tjaldið á ÍNN.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Hefur þú fundið öll vegglistaverkin í höfuðborginni? – Síbreytilegt fjársjóðskort

Hefur þú fundið öll vegglistaverkin í höfuðborginni? – Síbreytilegt fjársjóðskort
Fókus
Fyrir 3 dögum

50 stærstu stjörnur YouTube berjast um 1 milljón dala -„Þú ert vondur maður, herra Beast“

50 stærstu stjörnur YouTube berjast um 1 milljón dala -„Þú ert vondur maður, herra Beast“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Deitið ætlaði að hafa hann að fífli – „Þessar stelpur héldu að ég væri vitlaus, sem ég er ekki“

Deitið ætlaði að hafa hann að fífli – „Þessar stelpur héldu að ég væri vitlaus, sem ég er ekki“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nadine ekkert sérstaklega sátt við eiginmanninn sem gleymdi hvenær hún á afmæli

Nadine ekkert sérstaklega sátt við eiginmanninn sem gleymdi hvenær hún á afmæli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Tinder ekki að gefa? – Kannski Bænder sé málið

Tinder ekki að gefa? – Kannski Bænder sé málið
Fókus
Fyrir 5 dögum

Haukur Már skipti út frönskum og fékk kvörtun nakinn í World Class – „Ég hef svona semi fengið morðhótanir“

Haukur Már skipti út frönskum og fékk kvörtun nakinn í World Class – „Ég hef svona semi fengið morðhótanir“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Raunveruleikastjarnan Ingi segir varasamt að fara á stefnumót á Íslandi – „Eins og að taka þátt í rússneskri rúllettu“

Raunveruleikastjarnan Ingi segir varasamt að fara á stefnumót á Íslandi – „Eins og að taka þátt í rússneskri rúllettu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Ég vissi alltaf að þetta væri ekki eðlilegt, það væri eitthvað að“

„Ég vissi alltaf að þetta væri ekki eðlilegt, það væri eitthvað að“