fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Kynning

Orkan okkar: „Hvernig getum við setið hjá og leyft þessu að gerast?“

Kynning
Kynningardeild DV
Laugardaginn 20. apríl 2019 09:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kynning:

„Fyrir mér er þetta fullveldismál. Ég vil að Íslendingar eigi orkuna og ég get ekki hugsað mér að við markaðsvæðum orkukerfið okkar ef við samþykkjum þingsályktunartillögur og frumvarp sem tengjast Orkupakka 3. Þá erum við þar með að tapa völdum yfir til stofnana í Evrópu og það vil ég ekki,“ segir Elínóra Inga Sigurðardóttir, stofnandi samtakanna Orkan okkar.

Um er að ræða samtök þeirra sem vilja standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt Íslands í orkumálum. Samtökin voru stofnuð í október 2018 til þess að vekja athygli á mikilvægi orkuauðlindarinnar fyrir lífskjörin í landinu og kynna rök gegn frekari innleiðingu orkulöggjafar ESB hér á landi. Samtökin eru opin öllum sem vilja styðja málstaðinn.

Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður er í hópi þeirra sem eru alfarið á móti innleiðingu þriðja orkupakkans. Segir hann það einnig vera leiðinlegt að sjá hvað það eru margir þarna úti sem nenna ekki að kynna sér þetta. „Hvernig getum við setið hjá og leyft þessu að gerast?“ spyr Sigmar. „Orkupakki 3 er stærra skref í þá átt að einkavæða orkuauðlindir okkar, við erum með 10 ára reynslu af Orkupakka 2 og reynslan er hærra orkuverð á öll heimili og fyrirtæki í landinu. Með Orkupakka 3 er verið að fara enn lengra í þeim málum. Á Íslandi er eitt lægsta orkuverð í heimi, orkufyrirtækin í landinu, sem eru í okkar eigu, eru að skila hagnaði til ríkisins sem fer í innviðauppbyggingu og orkukerfið okkar er mjög stöðugt. Því í ósköpunum á að breyta því? Hvað er hægt að biðja um meira fyrir okkur sem þjóð? “

Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður, tekur í sama streng og er á móti vegferðinni allri. „Hún endar með því eftir að búið er að markaðsvæða orkuna, að þessi fyrirtæki verða sett á markað og seld. Þau hafna í höndum á fjárfestum, innlendum eða erlendum, og það er að gerast núna. Það er þegar að gerast með vatnsréttindi víða um landið og það mun gerast með allan þennan geira. Þegar hvati er kominn inn í kerfið að virkja sem mest fyrir arðsemi, þá fer ég að biðja fyrir íslenskri náttúru.“

Þúsundir hafa þegar gengið í hópinn Orkan okkar á Facebook en í þann hóp eru allir velkomnir sem eru sammála því að Íslendingar eigi sjálfir að stýra eigin orkumálum og því beri að hafna innleiðingu þriðja orkupakka ESB hér á landi.

 

Kynntu þér málið nánar á orkanokkar.is

Skorum á þingmenn að hafna þriðja orkupakka ESB!

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“