Disney var að gefa út stikluna fyrir „live-action“ endurgerðina af The Lion King á miðvikudaginn.
Í stiklunni fá aðdáendur að sjá aðalkarakterana í nýju ljósi í fyrsta skipti.
Meðal leikara eru Donald Glover, Beyoncé, Billy Eichner, Seth Rogen, John Oliver, James Earl Jones og Chiwetel Ejiofor.
Myndin kemur í kvikmyndahús 19. júlí næstkomandi.