fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Eyjan

Gunnar Smári: „Ríkisstjórnin kaus að gera eins lítið og mögulegt var“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 4. apríl 2019 10:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mér finnst samningur verkalýðshreyfingarinnar við samtök fyrirtækjaeigenda sleppa ágætlega. Krafan var 425 þús. kr. en niðurstaðan varð 390 þús. kr. Þegar krafan var sett fram þótti hún svo djörf að ýmsir erindrekar hinna ríku misstu vitið og hafa ekki fundið það enn. Síðastliðið sumar virtist sem krafan væri að formast um 400 þús. kr. Svo 390 þús. kr. er í versta falli ásættanleg lending.“

Svo hefst pistill Gunnars Smára Egilssonar, sósíalistaforingja, sem skrifar einnig um nýju lífskjarasamningana. Hann er ekki sáttur við framlag ríkisstjórnarinnar, hvers umfang er sagt um 80 milljarðar.

Varnarsigur

Gunnar Smári segir að aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi verið varnarsigur um skattkerfi nýfrjálshyggjunnar:

„Frá sjónarhóli ríkisstjórnarinnar voru kjarasamningarnir varnarsigur. En hvað var hún að verja? Skattkerfi nýfrjálshyggjunnar sem færði hinum ríku um 150 milljarða á ári? Markaðsvæðingu húsnæðiskerfisins og ofurvaxtastefnuna? Fólk sem fagnar ríkisstjórninni á þessum tímamótum er í raun að fagna framlengingu tímabils nýfrjálshyggjunnar um nokkur ár. Verkefni næstu ára hlýtur að verða að fella það skrímsli og hrekja talsmenn þess út úr stjórnarráðinu. Með varðliða nýfrjálshyggjunnar í ríkisstjórn verður ekki hægt að byggja hér upp samfélag sem mótað er af hagsmunum og væntingum almennings.“

„Það sem dregur þessa samninga niður er framlag ríkisstjórnarinnar. Hún stóð frammi fyrir tækifæri; einskonar Breiðholtssamningum, stóru framlagi til að vega upp óþolandi óréttlæti samfélagsins. En ríkisstjórnin kaus að gera eins lítið og mögulegt var. Eitthvað í skattamálum en of lítið. Kaupmáttaraukning lægstu launa koma að 4/5 frá fyrirtækjum vegna launahækkana en aðeins að 1/5 í gegnum skattaleiðréttingu, þrátt fyrir svívirðilegar skattahækkanir á lægstu laun og meðallaun á nýfrjálshyggjuárunum. Nýfrjálshyggjuliðið í ríkisstjórninni hlýtur að hafa skotið tappa úr kampavíni í gær; þeim tókst að verja skattahækkanir á almenning á liðnum árum og stórkostlegar skattalækkanir til hinna ríku.“

Markaðsvætt helvíti leigumarkaðarins

Gunnar segir stefnuna í húsnæðismálum ekki ganga nægilega langt, til dæmis fyrir leigjendur:

„Eitthvað í húsnæðismálum en of lítið, aðallega aðgerðir til að örva markaðinn, þann sama og hefur leitt heimskustu húsnæðisstefnu síðustu alda; að byggja þúsund blokkaríbúðir fyrir stórefnað fólk en ekki eina íbúð fyrir fólk í húsnæðisvanda. Og hvar eru aðgerðirnar til að rétta hlut leigjenda, fólksins sem hefur lifað meiri efnahagslegar hörmungar undir markaðsvæddu helvíti leigumarkaðarins en millistéttin gegn í gegnum í hruninu?“

Verðtrygging og vaxtaverkir

Gunnar Smári vildi að vaxtaákvörðunarvaldið yrði tekið af Seðlabankanum, en vaxtalækkanir hans eru ein af forsendum samningana:

„Eitthvað í vaxtamálum en of lítið. Það var þrengt að verðtryggingu en hún ekki afnumin. Til að þessi aðgerð leiði til vaxtalækkunar er hætt við að ungt og tekjulágt fólk þurfi að þjást á leigumarkaði áfram, að það leiði til minnkandi eftirspurnar eftir íbúðarhúsnæði, það til verðlækkunar og það síðan til vaxtalækkunar. Af hverju var vaxtaákvörðunarvaldið ekki einfaldlega tekið af Seðlabankanum. Hann er fyrir löngu búinn að sanna að honum er ekki treystandi fyrir því.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Óþekkt og almennt slugs orðið hluti af mannréttindum barna”

„Óþekkt og almennt slugs orðið hluti af mannréttindum barna”
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ný-mjór

Óttar Guðmundsson skrifar: Ný-mjór
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Milljónir í stjórnarlaun en engir stjórnarfundir – óheyrilegur lögfræðikostnaður en engar tímaskýrslur

Lindarhvoll: Milljónir í stjórnarlaun en engir stjórnarfundir – óheyrilegur lögfræðikostnaður en engar tímaskýrslur
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu