Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson orti ljóð á dag í eitt ár, alls 366 ljóð sem nú eru komin út í bókinni Dagatal.
Í ljóðunum er talað um dagana og hefur bókin því nýstárlega merkingu. Bókin fæst hjá höfundi og eru eintökin númeruð og aðeins 366 talsins.