fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
FókusKynning

Óheilbrigt kynlíf

Íslenskir unglingar byrja snemma að stunda kynlíf – Fræðsla lykilatriði

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 5. febrúar 2017 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Teitur Guðmundsson læknir skrifar:

Þegar við veltum fyrir okkur hvað það er að stunda heilbrigt kynlíf getur ýmislegt komið upp í huga fólks. Sumir kynnu að velta fyrir sér praktík, aðrir að horfa til sjúkdóma og örugglega margir sem horfa til þess að það sé gert með samþykki beggja aðila og á jafnræðisgrundvelli. Nýleg mynd í leikstjórn Páls Óskars Hjálmtýssonar, Fáðu Já !, var sýnd við góðar undirtektir í skólum landsins sem og í sjónvarpi. En þar var beitt annarri nálgun en hefðbundið er í kynfræðslu til yngri kynslóðarinnar og sérstaklega var tekið á mörkum kynlífs og ofbeldis sem þótti takast með miklum ágætum.

„Heilbrigt kynlíf hlýtur að verða mottó okkar allra!“

Það er staðfest sem okkur hefur lengi grunað, þ.e.a.s. að íslenskir unglingar byrji tiltölulega snemma að stunda kynlíf í samanburði við önnur lönd, eða í kringum 15 ára aldur. Þá er það áhyggjuefni að kostnaður við kaup á getnaðarvörn eins og smokknum hindri unglingana í að nota slíkar sjálfsagðar varnir. Þeir eru feimnir að biðja um pening fyrir slíku hjá foreldrum sínum og má ljóst vera að of oft eru stunduð kynmök án varna sökum þessa. Það er ekkert launungarmál að tíðni kynsjúkdóma er hæst í aldurshópnum 15–25 ára og hefur lengi verið svo, alvarlegir sjúkdómar leynast þarna á meðal og geta haft veruleg áhrif á framtíð ungs fólks. Þar nægir að nefna mögulega ófrjósemi hjá konum af völdum klamydíusýkingar, en alvarlegri sjúkdómar eins og HIV og lifrarbólga smitast einnig við kynlíf og geta verið óafturkræfir.

Skortir upplýsta umræðu á heimilinu

Fjöldi tilfella af klamydíu á Íslandi er einna mestur í heimi og er ekki ljóst hvers vegna það er, sumir telja okkur fara óvarlegar og eiga fleiri rekkjunauta, aðrir segja að gott aðgengi að slíkri skoðun, umræðan hefur verið virk og prófið er ókeypis. Hvað sem rétt er erum við að greina of marga á hverju ári en ríflega 2.000 greiningar eru á hverju ári og hefur farið fjölgandi undanfarin ár samkvæmt tölum landlæknis. Hið sama gildir um tíðnitölur lekanda og HIV, auk sárasóttar yfir tilkynningarskylda sjúkdóma. Þetta er met sem er ekki hægt að vera stoltur af sem Íslendingur.

Þetta eru ekki nýjar fréttir en það sem kannski stingur mann mest er að samskipti milli foreldra og unglinga virðast ekki nægjanlega góð, upplýst umræða á heimilinu virðist vera undantekning frekar en regla og þurfum við að finna leið til að breyta því. Í því samfélagi sem við lifum í í dag virðast enn þrífast verulegar ranghugmyndir um nær alla þá þætti sem snúa að kynlífi, kynheilbrigði og mörkum ofbeldis, þrátt fyrir gnótt upplýsingaflæðis á veraldarvefnum og í internetvæddum símum ungmenna nú til dags. Það er því ekki hægt að bera við skorti á möguleikum til að fræðast. Vefsíður hafa þar leikið ákveðið hlutverk og markviss kynfræðsla fer fram í skólum og í gegnum sjálfboðavinnu læknanema, Ástráð, svo eitthvað sé nefnt. En betur má ef duga skal!

Fræðsla lykilatriði

Mér sem lækni finnst stundum að fræðslan og umræðan snúist fyrst og fremst að ótímabærri þungun og að okkur beri að koma í veg fyrir slíkt. Ósjaldan kemur móðir með dóttur sína til að biðja um pilluna, en hún ver einstaklinginn nákvæmlega ekkert gegn kynsjúkdómi. Mögulegt er að hún ýti kannski frekar undir minni notkun smokka og þar með aukna smithættu. Hér er auðvitað fræðsla lykilatriði og hlýtur að stærstum hluta að falla á herðar foreldra. Nú hef ég ekki neinar nýjar tölur um notkun getnaðarvarnarpillunnar hér í samanburði við lönd í kringum okkur en það væri fróðlegt að vita hvort við eigum líka met í þeirri notkun sem þó má telja líklegt

Mottó okkar allra

En hver er þá niðurstaðan? Að mínu viti er hún margþætt. Í fyrsta lagi þarf að bæta aðgengi að getnaðarvörnum eins og smokkum, skoða þarf kynfræðslu í skóla og endurmeta hana í samvinnu við nemendur og foreldra. Það ætti að skylda foreldri til að taka svipuð námskeið, enda ekkert sem segir til um hæfni foreldra til að miðla upplýsingum í raun, hvað þá heldur að þeirra eigin reynsla sé endilega til þess fallin að geta veitt leiðbeiningu. Þetta ætti því ekki að vera neitt feimnismál. Nýleg lög um bólusetningu barna við HPV veiru er stórt skref í kynheilbrigði og virðingarvert á niðurskurðartímum, en betur má ef duga skal. Við erum því líklega öll sammála að kynlíf er eitthvað stórkostlegt og ef vel tekst til eykur það sjálfstraust, vellíðan og almenna hamingju þeirra sem þess njóta. Því ætti að hvetja til þess en að sama skapi uppfræða um hætturnar.

Heilbrigt kynlíf hlýtur að verða mottó okkar allra!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni