Jenna Jameson er stjörnusérfræðingur ketóliða, eða ketódrottningin eins og hún kallar sig sjálf. Hún hefur misst tæplega 40 kíló síðan hún byrjaði á ketó í apríl 2018.
Fyrrum klámstjarnan er dugleg að deila ýmislegu ketó tengdu á Instagram, eins og hvernig hún nær árangri á mataræðinu og tólf ráðum sem hjálpuðu henni.
Jenna gæti auðveldlega skrifað bók um ketó-mataræði miðað við allar þær upplýsingar og ráð hún gefur fólki reglulega. Hún hefur hins vegar ekki sagt frá því hvernig þetta byrjaði allt saman, fyrr en nú.
https://www.instagram.com/p/BvM6GqVgOff/
Í nýrri Instagram færslu fer Jenna yfir það hvernig hún byrjaði á ketó.
„Ég byrjaði á því að endurraða ísskápnum mínum og eldhússkápunum. Ég henti öllu sem var unnið eða innpakkað,“ skrifar Jenna.
Síðan las hún innihaldslýsingar á uppáhaldsmatnum sínum.
„Það gæti komið þér á óvart hvað mörg fyrirtæki fela kornsíróp, kartöflusterkju og önnur fylliefni og sykur í matnum þeirra,“ sagði hún.
Eftir það fór Jenna í matvöruverslanir og keypti hreinan óunnin mat. „Mikið af fallegum afurðum, villtum fiski og grasfóðrað kjöt.“ Hún keypti einnig mikið af oststykkjum því hún segir rifinn ost oft innihalda kartöflusterkju.
„Því stytti sem innihaldslistinn er því betra,“ segir Jenna þegar kemur að mat.
https://www.instagram.com/p/Bu7WxE6hS3d/
„Ég drekk aðallega vatn en ég elska Fresca gos, það vinnur gegn sykurlönguninni,“ segir hún og bætir við að það sé mikilvægt að hafa ísskápinn fullann af hollum og góðum mat til að freistast ekki í að kaupa tilbúinn mat á skyndibitastöðum.
„Eitt af því sem ég geri til að haldast grönn er að elda alltaf minn eigin mat og fara sjaldan út að borða.“
Ef þú heldur að matarskápar Jennu séu stútfullir af alls konar „ketó-mat,“ þá hefurðu rangt fyrir þér.
„Ég forðast öll stór fyrirtæki sem merkja matinn sinn „KETÓ,“ þau eru venjulega að svindla á þér. Haltu þig við heilnæman mat sem kemur frá Móður Jörð.“
Að lokum segir Jenna að það sem er mikilvægast til að halda áfram í ketó er að hafa fjölskylduna með sér í þessu.
„Það er mjög mikilvægt að fá stuðning frá þínum nánustu. Það spilar hlutverk í velgengni þinni. Eiginmaður minn er klappstýran mín.“