Eurovision-sérfræðingarnir William, Angus og Antranig hjá Eurovision-síðunni Wiwibloggs fara ítarlega yfir lagið Hatrið mun sigra, framlag Íslands í Eurovision, í nýju myndbandi. Þá velta þeir sigurlíkum Hatara fyrir sér.
„Þeir eru komnir til að rústa þessu og gætu unnið Eurovision fyrir Íslands,“ segir William sem er yfir sig hrifinn af laginu. „Lagið kallar fram einhverjar tilfinningar,“ segir hann. „Það kallar fram viðbrögð sem er mjög mikilvægt.“
Þá er hann einstaklega hrifinn af Klemens Hannigan, annars söngvarans í Hatara.
„Engillinn frá Reykjavík,“ segir hann og ljómar, og bætir við að það gæti verið klókt fyrir Hatara að láta atriðið enda þannig á sviðinu að „engillinn vinni.“ Þá er William alveg klár á því að Hatari komist upp úr sínum undanriðli og telur jafnvel að fagdómnefndir verði hrifnari af laginu en áhorfendur.
Antranig er einnig mjög skotinn í laginu.
„Bindið mig niður og gerum þetta! Þetta er ótrúlega. Þetta er gjörsamlega stórkostlegt,“ segir hann og er ánægður með að Ísland taki áhættu í keppninni í ár.
„Ísland hefur verið að tefla fram öruggu lagi í mörg, mörg ár og það hefur ekki virkað. Núna taka þeir áhættu og eiga eftir að uppskera vel.“
Angus er hins vegar ekki aðdáandi lagsins og segir það óaðgengilegt. Hann telur þó að það eigi möguleika í keppninni.
Myndbandið í heild sinni má horfa á hér fyrir neðan: