Gísli Álfgeirsson hefur í 18 mánuði safnað hári til hárkollugerðar fyrir börn með krabbamein. Ástæða söfnunarinnar er persónuleg, en eiginkona Gísla, Olga Steinunn hefur barist við krabbamein undanfarin sex ár. Samhliða hárinu hefur Gísli safnað skeggi og ákvað að slá tvær flugur í einu höggi og taka líka þátt í Mottumars. Stefnir hann á að safna einni milljón til styrktar Krabbameinsfélaginu og fær hæstbjóðandi að ákveða hvernig mottu hann mun bera út mánuðinn.
Seinni partinn í gær, fimmtudaginn 14. mars, höfðu safnast 590 þúsund krónur og var hæsta boð frá vinnufélögum Gísla á Lagna- og loftræsti sviði Mannvits með 142 þúsund krónur.
Í dag, föstudaginn 15. mars klukkan 8.00 mun Nonni Quest raka hárið af Gísla og skilja eftir mottu í beinni útsendingu á K100.
Sjá einnig: Gísli safnar hári fyrir börn með krabbamein – Hæstbjóðandi fær að ráða mottunni í mars