Hér er skemmtilega en snúin myndagáta á ferðinni. Vakti gátan mikla athygli á vef BBC. Svo lesendur séu aðeins fræddir um greifingja, með aðstoð Vísindavefsins, þá flokkast þeir í átta tegundir sem greinast í sex ættkvíslir. Tegundirnar eru ólíkar hvað varðar stærð, feld og búsvæði. Við þetta má bæta að æxlunarháttur ameríska greifingjans er allsérstakur. Æxlun á sér stað snemma á haustin en fljótlega stöðvast þroski fóstursins. Á nýju ári heldur fóstrið áfram að þroskast og ungarnir koma í heiminn snemma að vori þegar fæðuframboð er nægilegt.
Nóg um það. Frekar má lesa um greifingja á Vísindavefnum. En geta lesendur DV fundið greifingjann sem felur sig á meðal sebrahestanna?