fbpx
Miðvikudagur 25.desember 2024
FókusKynning

Snúningur í hringekju

Fólk sem upplifir skyndilegan svima, ásamt fleiri einkennum, ætti að leita til læknis

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 29. janúar 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það kannast sennilega flestir við það að fá svima enda býsna algengt vandamál. Þeir sem eru hraustir og hafa enga undirliggjandi sjúkdóma fá slíkt endrum og sinnum en alla jafna gengur sviminn niður með því að setjast niður, hvílast, drekka eða borða eitthvað.

Skýringin á því er í raun býsna einföld og byggir á því að undir ákveðnum kringumstæðum getur orðið skammvinn blóðflæðiröskun um heilann sem veldur slíkum einkennum, það köllum við blóðþrýstingsfall. Í sumum tilvikum er það svo alvarlegt að viðkomandi getur sortnað fyrir augum og liðið út af, en oftar en ekki finna þessir einstaklingar fyrir svimatilfinningu á undan.

Hið sama getur átt við ef fyrir einhverjar sakir við fáum sykurfall sem þýðir í raun að líkaminn hefur um skamma stund ekki nægjanlega orku til að keyra kerfið, ef svo má segja, þá kemur oft fram svimi í byrjun. En líkt og gerist þegar við missum blóðþrýsting getur sykurfall valdið því að viðkomandi missir meðvitund. Hvort tveggja getur verið mjög dramatískt en einstaklingurinn jafnar sig yfirleitt mjög fljótlega ef hann fær viðeigandi meðferð.

„Talið er að allt að 20–30% einstaklinga fái svima, þeir eru á öllum aldri en konur eru líklegri en karlar að fá slíkt.“

Margt getur valdið svima

Mjög mörg önnur vandamál geta valdið svimatilfinningu, jafnvægisleysi og ógleði sem veldur því að fólk leitar til læknis og má þar nefna háan blóðþrýsting, vöðvabólgu, kvíða og andlega vanlíðan,svo dæmi séu tekin, og svo má auðvitað ekki gleyma áfengisneyslu. Talið er að allt að 20–30% einstaklinga fái svima, þeir eru á öllum aldri en konur eru líklegri en karlar að fá slíkt. Það eru ansi margar heimsóknir á bráðamóttökur vegna þessara einkenna, en sums staðar hafa tölur allt að 3% allra ástæðna verið á þessum grunni.

Búið er að skilgreina orsakir svimans almennt í miðlægar eða útlægar, sem er að vissu leyti erfitt að átta sig á sem leikmaður, en þar er átt við hvort upptökin eigi sér stað í miðtaugakerfinu eða utan þess.

Stundum getur svimi horfið við vatnsdrykkju.
Vatn Stundum getur svimi horfið við vatnsdrykkju.

Mynd: 123rf.com

Eyrnagöngin

Dæmi um útlægan svima eru einnig þær algengustu en þar ber helst að geta góðkynja stöðusvima, sýkingar í innra eyra af völdum veiru eða bakteríusýkinga eða bólgu í heyrnartaug auk þess sem áverkar á höfuðið og notkun ákveðinna lyfja geta skipt máli. Einkenni geta komið skyndilega en almennt má segja að einstaklingurinn finni fyrir versnun yfir einhvern tíma, geti jafnvel útleyst einkennin sjálfur eða lagað þau eftir því í hvaða stellingu hann er. Það er klassískt við stöðubundinn svima og byggir það á innri eyrnagöngum sem eru stór hluti af jafnvægiskerfinu. En fyrir utan þá notum við nema í hálsinum og augun til þess að halda jafnvæginu.

Meðferðin getur verið af ýmsu tagi en byggir oftast nær á því að laga misræmi í innri eyrnagöngum, notast við bólgueyðandi eða sýkladrepandi lyf auk þess að gefa þessu tíma.

Fleiri miðtaugakerfiseinkenni

Þegar við fáum svima sem byggir á miðlægri orsök kemur hann skyndilega og er oftar en ekki um að ræða bráða blóðþurrð eða blæðingu í heilastofni eða litla heila. Stundum byggja einkennin á æxlisvexti eða breytingum á heilavef í hrörnunarsjúkdómum. Þessu fylgja iðulega fleiri miðtaugakerfiseinkenni samanber taltruflun eða sjóntruflanir, jafnvel algert jafnvægisleysi þannig að viðkomandi á erfitt með að standa, hvað þá ganga, og yfirleitt lagast einkenni lítið þrátt fyrir að breytt sé um stellingu. Oftsinnis fylgir líka mikil ógleði og uppköst.

Það er því ekki alveg sama hvaðan sviminn kemur né heldur hversu brátt þarf að bregðast við. Almennt er hægt að segja að líkurnar á að ungir einstaklingar sem eru hraustir fyrir séu ólíklegir til að eiga við alvarlegan vanda í miðtaugakerfinu og ættu að leita læknis á heilsugæslustöð eða hjá öðrum sérfræðingum.

Áhættan á blæðingu, blóðtappa eða alvarlegri sjúkdómum eykst með aldri og er mikilvægt að muna það þó fyrir alla aldurshópa að ef svimi byrjar skyndilega án nokkurs fyrirvara, sérstaklega ef honum fylgja mikil almenn einkenni til viðbótar eins og ógleði, jafnvægisleysi eða meðvitundarskerðing er mikilvægt að láta skoða sig sem fyrst á sjúkrahúsi þar sem þörf er á sérhæfðri myndgreiningu og meðferð ef um bráðan vanda er að ræða.

Höfundur: Teitur Guðmundsson læknir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“