fbpx
Laugardagur 30.nóvember 2024
FókusKynning

Framúrskarandi húðvörur frá Schrammek fyrir viðkvæma húð og rósroða

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 28. janúar 2017 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sensitive-línan frá Schrammek inniheldur húðvörur sem ætlaðar eru fyrir viðkvæma húð og vinna gegn rósroða. Húð getur verið þurr, rauð, ert og með þurrkublettum auk ofnæmisviðbragða. Vörur í Sensitive-línunni róa niður viðkvæma og erta húð auk þess að vernda hana gegn utanaðkomandi áreiti; enn fremur draga vörurnar úr roða og næra viðkvæma húð.

Allar vörurnar í Sensitive-línunni innihalda hvorki ilm né jarðolíur og eru því mjög góðar fyrir viðkvæma húð; línan eykur vellíðan í húðinni.

Frábært í baráttunni við rósroðann.
Frábært í baráttunni við rósroðann.

Auk varanna í Sensitive-línunni býður Schrammek upp á Blemish Balm sem er hannað með það að markmiði að róa niður roða og ertingu í húð. Blemish Balm hentar einnig afar vel fyrir viðkvæma húð eða gegn rósroða.

Hvað er rósroði og hvað er til ráða?

Rósroði er kvilli eða sjúkdómur í húð sem hefur ólíkar birtingarmyndir. Hann hefur tilhneigingu til að birtast á kinnum, höku, nefi og í sumum tilfellum á enni. Einkenni rósroða eru roðaköst og þeim getur fylgt bruni þegar pirringur/erting, háræðar verða sýnilegri og í sumum tilfellum myndast bólur og/eða fílapenslar.

Orsakir rósroða eru óþekktar en þeir þættir sem leiða til útvíkkunar æða geta gert illt verra, t.d. andlegt og líkamlegt álag, óhagstæð veðrátta, röng húðkrem og mataræði; kryddaður matur, áfengi og kaffi.

Varast skal andlitskrem sem svíður undan eða valda roða. Það geta t.d. verið krem sem innihalda: alkóhól, menthol, piparmintu og ólífuolíu, svo eitthvað sé nefnt. Þá skal forðast að nota púður.

Margir Íslendingar eru með viðkvæma húð og hafa allmargir verið greindir með rósroða. Til að fá greiningu á rósroða skal leita til húðsjúkdómalæknis.

Ýmsar lausnir fyrir hvers kyns húðvandamál.
Ýmsar lausnir fyrir hvers kyns húðvandamál.

Dr. Med. Christina Schrammek hefur þróað vörur fyrir rósroða og viðkvæma húð. Í þeirri línu eru einnig meðferðir hjá faglærðum snyrtifræðingum sem hafa notið mikilla vinsælda hjá þeim sem eru með rósroða eða viðkvæma húð. Í línunni eru krem, maski, ampúla, andlitshreinsir og serum, sem viðskiptavinum gefst kostur á að kaupa, en mælt er með, áður en verslað er úr línunni, að fá prufur og leiðsögn hjá snyrtifræðingum.

Erna María Schrammek á Íslandi og Vilja ehf.
Erna María Schrammek á Íslandi og Vilja ehf.

Meðferðaraðilar og sölustaðir fyrir vörur frá Schrammek eru eftirtaldir:
Snyrtistofan Verði þinn vilji, Borgartúni 3
Deluxe snyrti og dekurstofa, Glæsibæ
Pandóra snyrti- og fótaaðgerðarstofa, Þangbakka
Heilsa og útlit snyrtistofa, Hlíðarsmára
Túlip snyrti- og fótaaðgerðarstofa, Hæðasmára
Sjá enn fremur á vefverslun Sckrammek.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“