fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024

Þörf á kosningaeftirliti

Ritstjórn DV
Laugardaginn 2. mars 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heiðveig María Einarsdóttir hafði sigur gegn Sjómannafélagi Íslands fyrir félagsdómi vegna brottrekstrar hennar í haust. Var félaginu gert að greiða henni málskostnað og ríkissjóði 1,5 milljónir króna í sekt vegna málsins.

Stjórnarmenn eru þöglir um úrskurðinn og ætla að ráða ráðum sínum í næstu viku. Eftir úrskurðinn hafa margir talið að ógilda verði formannskosningarnar frá því í desember og gefa Heiðveigu færi á að bjóða sig fram.

Miðað við það sem á undan er gengið væri æskilegt að utanaðkomandi aðilar fylgdust með eða jafnvel sæju alfarið um þær kosningar. Núverandi stjórnarmenn hafa beitt öllum aðferðum til að halda öðrum frá og sögðu sig úr Alþýðusambandinu þegar þess var krafist að þeir skiluðu ársreikningum. Hafa margir spurt sig hvað sé verið að verja.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt