Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra brá á það ráð að skyndifriðlýsa það svæði Víkurgarðs sem átti að fara undir hótel. Var það gert eftir langvarandi þrýsting frá borgurum sem annt er um minjavernd og helgi garðsins.
Víkurgarðurinn er ekki eini forni kirkjugarðurinn í Reykjavík. Hinn stóri Laugarneskirkjugarður var friðlýstur árið 1930 og Breiðholtskirkjugarður árið 1981. Í Engey, Viðey, Hólmi við Suðurlandsveg og Gufunesi, norðan við núverandi grafreit, er einnig að finna fornar grafir. Þá er forn kirkjugarður á Seltjarnarnesi, við Seltjörn. Ekki er vitað nákvæmlega hversu langt allir þessir garðar náðu og helgin því á huldu.
Vaknar þá sú spurning hvort ekki þurfi að senda út her af fornleifafræðingum til að komast til botns í þessu aðkallandi máli; hvaða þúfa teljist helg og hver ekki?