fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
FókusKynning

Sársaukafull beinhimnubólga

Batahorfur í flestum tilfellum góðar

Einar Þór Sigurðsson
Laugardaginn 7. janúar 2017 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Beinhimnubólga (e: periostitis tibia, medilat tibiasyndrom, shin splints) er algengur álagsáverki hjá hlaupurum og er tíðnin óháð kyni og aldri. Flestir hafa orðið fyrir meiðslunum einhvern tímann á hlaupaferlinum og eru batahorfur góðar ef fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð er beitt tímanlega.

Verkurinn við beinhimnubólgu er staðsettur innanvert á sköflungi u.þ.b. 10 til 20 sentimetrum fyrir ofan ökklaliðinn. Í fyrstu koma óþægindin eftir æfingar en verða síðan meira viðvarandi.

Aftari vöðvi sköflungsins (musculus tibialis posterior) endar í sin sem liggur innanvert um ökklaliðinn og undir fótinn þar sem sinin dreifir sér í smærri greinar sem festast undir millifótabeinin. Vöðvinn er mikilvægur til að mótverka innhalla á fæti (pronation). Við innhalla eykst álagið á vöðvanum og hætta á bólgu við beinhimnuna.

Meiðslin eru algengust á vorin þegar æfingaálag er aukið. Hlaup á hörðu undirlagi, hallandi braut og skór með lélega dempun/stuðning eru algengur orsakaþáttur, en of mjúkt undirlag (sandur, gras) getur aukið á innhalla og orsakað meiðslin.

Til að fyrirbyggja meiðslin er því mikilvægt að huga vel að skóm, hugsanlegu innhallavandamáli, hita vel upp fyrir átök, taka mark á verkjaaðvörunum og draga þá úr æfingum.

Teygjur á aumum og stuttum vöðvanum eru mikilvægar og draga má úr bólgunni með ískælingu (a.m.k. 20 mín. í einu tvisvar til þrisvar á dag) eða með bólgueyðandi lyfjum.

Í flestum tilvikum eru batahorfur góðar ef tekið er á vandanum í upphafi með festu en ef einkenni eru slæm eða hverfa ekki þrátt fyrir meðferð er rétt að taka röntgenmynd af sköflungnum til að útiloka hugsanlega álagssprungu/-brot í beininu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“