Bílaleigur þurfa reglulega að minnka flota sinn og selja bíla til að geta endurnýjað fyrir næsta tímabil. Nú eru Avis bílaleigubílar komnir á sölu og því auðvelt að eignast nýlegan bíl, en notaðir bílaleigubílar eru frábær kaup. Avis bílaleiga er þekkt fyrir gæði og öryggi og eru Avis bílaleigubílar því undir ströngu gæðaeftirliti frá viðskiptavinum. Það er því alltaf öruggt að bílarnir eru í toppstandi og hafa verið þjónustaðir reglulega.
Það sem gerir bílaleigubíla betri en aðra notaða bíla er að þeir eru eknir mikið á stuttum tíma og því er eingöngu um langkeyrslu að ræða og það tryggir að þeir eru vel eknir. Bílvélar slitna mest frá því þær eru ræstar og þar til vinnsluhita er náð. Þessi akstur gerir það að verkum að allir ættu að vera öruggir þegar þeir kaupa bíl frá Avis.
Avis býður upp á árs ábyrgð á vél og drifbúnaði eða allt upp að 15.000 km þar sem vitað er að verið er að afhenda örugga vöru. Aðrir hlutir eru einnig í ábyrgð skv. ábyrgðarskilmálum Avis í sex mánuði.
Úrvalið er mikið þar sem í bifreiðaflota Avis eru yfir 60 tegundir bíla og er því næsta víst að þú finnur bílinn sem hentar þér.
Bílaleigubílarnir frá Avis eru á Bílasölu Reykjavíkur, Bílasölu Íslands og Toyota Selfossi og bætast stöðugt við bílar. Það hefur því sjaldan verið öruggara að kaupa notaðan bíl.