fbpx
Laugardagur 30.nóvember 2024
FókusKynning

Allt frá ódýrum bílum upp í nýlega bíla – 100% fjármögnun

Kynning

Bílabankinn.is, Bílakjarnanum Eirhöfða 11

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 22. janúar 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bílabankinn var stofnaður árið 2005 og er staðsettur í Bílakjarnanum að Eirhöfða 11. Bílabankinn leggur sig fram um að veita vandaða og góða þjónustu allt frá því að bifreiðin er skráð inn þar til nýr eigandi hefur tekið við. „Við vinnum að því að verða ein af helstu bílasölum á Íslandi með því að stunda vönduð og heiðarleg vinnubrögð. Við erum með mjög gott útisvæði sem er vaktað með myndavélum, auk þess sem við erum með fjölda bifreiða á skrá. Við leitumst eftir að hafa okkar viðskiptavini sem ánægðasta,“ segir Árni Þór Jónsson, löggiltur bifreiðasali og einn af eigendum Bílabankans.

„Við erum með gott úrval af ódýrum bílum og höfum reynt að sinna þeim hluta markaðarins vel. Við bjóðum 100% fjármögnun. Það er bæði hægt að taka kortalán og fjármögnun í gegnum Pei.is án greiðslukorts. Pei.is lánar allt að einni og hálfri milljón án kreditkorts sem getur komið sér vel fyrir fólk sem hefur góða greiðslugetu en litla útborgunargetu. Auk þess er Bílabankinn í samstarfi við öll helstu fjármögnunarfyrirtæki sem fjármagna bifreiðakaup,“ segir Árni. Bílabankinn er með mjög mikið úrval af notuðum bílum og verðbilið er stórt.

MMC Pajero. Árgerð 2013, ekinn 95 þ. km, dísil, sjálfskiptur, 5 gírar. Verð 5.990.000. TILBOÐ 5.190 Þús.
MMC Pajero. Árgerð 2013, ekinn 95 þ. km, dísil, sjálfskiptur, 5 gírar. Verð 5.990.000. TILBOÐ 5.190 Þús.

Aðspurður hvort bílasala hafi farið vaxandi undanfarið segist Árni ekki hafa greint mikla aukningu í sölu notaðra bíla en þetta sé að breytast: „Ég held að 2017 verði stórt ár í notuðum bílum. Þetta ræð ég af því sem er að gerast á markaðinum þar sem margir hafa verið að endurnýja bílana sína, bæði einstaklingar og fyrirtæki. Við erum með mjög gott úrval af nýlegum bílum og kemur það ekki síst frá bílaleigum jafnt sem einstaklingum.“

Árni segir að margir velji þann kost þegar þeir endurnýja bílinn sinn að kaupa ársgamlan bíl því afföllin eru mikil af nýjum bílum. Hann segir jafnframt að salan nú orðið sé mjög jöfn allt árið en áður hafi orðið mikil aukning yfir sumarið og á haustin. Nú sé þetta jafnara og það stafi meðal annars af því mikla úrvali af nýlegum bílum sem kemur í sölu frá bílaleigum.

CHEVROLET Spark. Árgerð 2010, ekinn 76  þ. k, bensín, 5 gírar. Verð 890.000.  Tilboðsverð 690 þús. 100% lán í boði!!!
CHEVROLET Spark. Árgerð 2010, ekinn 76 þ. k, bensín, 5 gírar. Verð 890.000. Tilboðsverð 690 þús. 100% lán í boði!!!

Árni tók við rekstri Bílabankans árið 2014 en hann segir að fyrirtækið hafi verið í fjölskyldu hans frá árinu 2006 og mestan tímann hafi hann starfað í fyrirtækinu. „Við erum tveir sem störfum hérna núna og óhætt er að segja að það er mikið að gera. Það vinnur enginn á þessari bílasölu án þess að hafa brennandi áhuga á bílum.“
Bílabankinn á Facebook

Bílabankinn.is er opinn virka daga frá 10 til 18 og laugardaga frá 12 til 15. Síminn er 588 0700. Á heimasíðunni bilabankinn.is eru ítarlegar upplýsingar um starfsemina, úrval bíla á sölu, fjármögnun, söluþóknanir og fleira. Einnig getur þú komið á staðinn og skráð bílinn þinn eða skráð hann hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“