Í Bíóhorni vikunnar skoðum við vísindaskáldsögu þar sem tveir virtir kvikmyndagerðarmenn snúa bökum saman, en það eru þeir James Cameron og Robert Rodriguez.
Myndin ber heitið Alita: Battle Angel og er byggð á samnefndum teiknimyndasögum sem hafa sópað til sín ófáum aðdáendum í gegnum árin.
Alita: Battle Angel verður frumsýnd í næstu viku en áhugasamir geta átt von á opnum forsýningum nú um helgina.
Guðni Einarsson fær orðið.