Í dag mun Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, mæla fyrir frumvarpi flokksins á Alþingi. Meðal meðflutningsmanna frumvarpsins eru Anna Kolbrún Árnadóttir, Birgir Þórarinsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason.
Í frumvarpinu er lagt til bann við myndatökum og hljóðupptökum í dómhúsum.
Í greinargerð frumvarpsins segir að færst hafi í vöxt að fjölmiðlar reyni að ná myndum af sakborningum og vitnum á leið sinni í dómssal, sem geti leitt til þess að vitni reyni að koma sér undan því að bera vitni.
Þá segir einnig:
„Einnig er ljóst að tækninni hefur fleygt fram hvað varðar farsíma, spjaldtölvur og myndavélar þannig að unnt er t.d. að taka myndir af skjölum í dómsal eða skjölum í fórum sakborninga eða vitna í dómhúsi. Slíkar myndatökur geta haft óeðlileg áhrif á gang mála.“
Helgi Seljan, fjölmiðlamaður hjá RÚV, bendir á þetta á Facebook og segir við það tækifæri:
„Hugsanlega mætti uppfæra greinargerðina með nýlegum dæmum.“
Greinargerð frumvarpsins:
Mjög hefur færst í vöxt að reynt sé að ná myndum af aðilum og vitnum í dómsmáli þegar þeir sinna erindum sínum í dómhúsum. Einkum á þetta við í opinberum málum. Undanfarin ár hefur jafnvel verið tíðkað að beina myndavélum inn í dómsali þegar dyr eru opnaðar meðan á þinghaldi stendur, svo sem þegar nýtt vitni gengur í salinn. Leiðir það til þess að hinn ákærði og vitni þurfa jafnan að hafa vara á sér að þessu leyti meðan á þinghaldinu stendur í stað þess að einbeita sér að málsvörn sinni eða vitnaleiðslu. Þykja þessar aðstæður vera til þess fallnar að trufla málsaðila, enda hafa þær slæm áhrif á bæði sakborninga og vitni. Dæmi eru um að vitni hafi viljað koma sér undan því að bera vitni vegna þessa. Einnig er ljóst að tækninni hefur fleygt fram hvað varðar farsíma, spjaldtölvur og myndavélar þannig að unnt er t.d. að taka myndir af skjölum í dómsal eða skjölum í fórum sakborninga eða vitna í dómhúsi. Slíkar myndatökur geta haft óeðlileg áhrif á gang mála.
Meginreglan er sú að þinghöld skuli háð í heyranda hljóði, sbr. 10. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008. Sú regla er ekki skert með því að banna myndatökur af aðilum máls inni í dómhúsi eða nálægt því eins og tíðkast í Danmörku og Noregi. Sú takmörkun sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu gengur ekki of nærri meginreglunni um opin þinghöld að mati flutningsmanna.