fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024

Hægri krati í heimsókn hjá VG

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. febrúar 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinstri græn halda málþing á laugardaginn í tilefni af tuttugu ára afmæli flokksins. Umræðuefnin verða loftslagsbreytingar og staða vinstrisins. Ýmsir innlendir og erlendir gestir ávarpa samkomuna. Þar á meðal verða Christian Juhl, þingmaður Enhedslisten í Danmörku, og Jónas Sjöstedt, formaður Venstre í Svíþjóð.

Langstærsta nafnið, stjarna hátíðarinnar, verður sjálfur Ed Milliband, fyrrverandi formaður og ráðherra breska Verkamannaflokksins. Milliband var einn af arkitektunum á bak við stórsigur Tonys Blair í þingkosningunum árið 1997, hinni miklu hægrikratabylgju. Sögðu margir flokkinn hafa svikið rætur sínar á vinstri vængnum.

Vekur boð Milliband óneitanlega upp spurningar um hvort Vinstri græn skilgreini sig nú sem krataflokk, í ljósi þess að þau eigi erfitt með að keppa við Sósíalista á vinstri vængnum, verandi í samstarfi með Sjálfstæðisflokknum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Notaleg kvöldstund fyrir bókaunnendur

Notaleg kvöldstund fyrir bókaunnendur
Eyjan
Fyrir 11 klukkutímum

Arnar Þór Jónsson: Íslensk fyrirtæki og heimili eiga ekki lengur skjól í Valhöll – það er löngu búið að henda þeim þaðan út

Arnar Þór Jónsson: Íslensk fyrirtæki og heimili eiga ekki lengur skjól í Valhöll – það er löngu búið að henda þeim þaðan út
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sagður hafa átt samtal við Amorim um að koma til United

Sagður hafa átt samtal við Amorim um að koma til United
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Þingmannsefni vill ekki mölunarverksmiðju

Þingmannsefni vill ekki mölunarverksmiðju