Samkvæmt tölum Þjóðskrár er Reykjanesbær kominn fram úr Akureyri í fólksfjölda. Er sá fyrrnefndi því 4. stærsta sveitarfélagið, en Akureyri það fimmta stærsta. Samkvæmt tölum frá 1. febrúar er íbúafjöldi Reykjanesbæjar 18,968, en á Akureyri búa 18,928 manns.
Fjölgunin í Reykjanesbæ var 86 manns milli 1. desember og 1. febrúar, en 28 á Akureyri.
Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 438 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. febrúar sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á 0,3%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Mosfellsbær með 145 íbúa (1,3% fjölgun) og Kópavogur með 142 íbúa (0,4% fjölgun).
Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Skorradalshrepps hlutfallslega mest eða um 8,6% en íbúum þar fjölgaði úr 58 í 63 íbúa.
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Árneshreppi, um 5,0% og í Borgarfjarðarhreppi um 2,8%.
Þá fækkaði íbúum í 29 sveitarfélögum af 72 sveitarfélögum landsins í síðan frá 1. desember sl.
Fækkun hefur orðið í þremur landshlutum frá 1. desember sl. Mest fækkaði á Vesturlandi eða um 33 íbúa sem er 0,2% fækkun. Ennfremur var lítilsháttar fækkun á Austurlandi og Vestfjörðum.
Hlutfallslega mest fjölgun varð á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum eða um 0,4%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 824 íbúa og íbúum á Suðurnesjum um 121 íbúa.