Flutningar Stefáns Steingrímssonar
Flutningar Stefáns Steingrímssonar er gamalgróið flutningafyrirtæki á Akureyri. Fyrirtækið stofnaði Norðlendingurinn og einyrkinn Stefán Steingrímsson í mars árið 2006 og eru viðskiptin sífellt að færast í aukana. Stefán, sem er mikill tækjaáhugamaður, ekur á milli Akureyrar og Reykjavíkur á átján tonna Iveco Stralis-flutningabíl með stórri kerru og flytur nánast hvað sem er. Flutningar Stefáns Steingrímssonar sinnir öllum almennum flutningum, almennri sendibílaþjónustu og búslóðaflutningum. Einnig sinnir fyrirtækið flutningi fyrir ýmis fyrirtæki.
„Það er alltaf nóg að gera hjá mér á sumrin og veturna en svo róast þetta aðeins á vorin. Febrúar, mars og apríl eru allajafna rólegustu mánuðirnir. Þá nýti ég tímann og fer í jeppaferðir upp á fjöll og snjósleðaferðir,“ segir Stefán sem hefur mjög gaman að útivist.
Stefán er með áætlunarakstur milli Akureyrar og Reykjavíkur, en þess milli flytur hann hvert á land sem er.
Áætlunarakstur:
Akureyri – Reykjavík á þriðjudögum
Reykjavík – Akureyri á miðvikudögum.
Hringdu í síma 891-7993 og fáðu verðtilboð.