UN Women kynnir nú Fokk ofbeldi húfuna 2019. Líkt og áður rennur allur ágóði sölunnar til verkefna UN Women og fæst húfan eins og fyrr í takmörkuðu upplagi en með breyttu útliti.
Landsnefnd UN Women á Íslandi fagnar 30 ára afmæli í ár. Af því tilefni var útliti húfunnar breytt, FO merkið er stærra í ár og úr endurskini. „Með því að kaupa Fokk Ofbeldi húfu tekur þú þátt í að lýsa upp myrkur kvenna og stúlkna sem þurft hafa að þola ofbeldi sem og skammdegið á Íslandi í febrúar. Þetta er fjórða Fokk Ofbeldi húfan sem UN Women á Íslandi hefur sölu á,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.
„Ágóði Fokk Ofbeldi húfu sölunnar hefur runnið til verkefna UN Women víða um heim og vinnur að því að koma í veg fyrir og uppræta ofbeldi gegn konum, fræðir almenning um skaðlegar afleiðingar kynbundins ofbeldis og tryggir þolendum viðeigandi aðstoð. Eitt þeirra verkefna er kvennaathvarf fyrir Jasídakonur í Írak sem neyddar voru í kynlífsþrælkun og þurftu að þola gróft kynferðisofbeldi af hendi liðsmanna vígasveita íslamska ríkisins. Í athvarfinu fá þær áfallahjálp og aðstoð við að vinna úr skelfilegri reynslu og koma sér aftur af stað út í lífið. Einnig fá aðstandendur þolenda faglega aðstoð og ráðleggingar um hvernig styðja megi við þær. Ágóði sölu Fokk Ofbeldi húfunnar í ár rennur til þessa kvennaathvarfs.“
Fyrirsætur herferðarinnar eru Gabríel Jaelon Culver, Donna Cruz, Ísold Braga og Króli og ljósmyndarinn Saga Sig tók myndirnar.
Lögð var áhersla á að fá fjölbreyttan hóp fólks í yngri kantinum sem aðstandendur eru stoltir af að hafa í forgrunni herferðarinnar.
Undanfarin ár hefur húfan selst upp og hvetur Stella alla til að hafa hraðar hendur og næla sér í húfu og lýsa stolt upp myrkrið. Húfan kostar 4.900 krónur og fæst á www.unwomen.is og í verslunum Vodafone sem jafnframt er bakhjarl herferðarinnar.