Idrissa Gueye miðjumaður Everton á góða möguleika á að fara til PSG í dag en hann vill ólmur fara.
PSG hefur verið að reyna að kaupa Gueye síðustu daga og nú virðist það vera ða klárast.
James McCarthy var á leið til Crystal Palace á láni en Everton hefur nú tekið fyrir það.
Ensk blöð segja að McCarthy fái ekki að fara því PSG er að bjóða 35 milljónir punda í Gueye sem Everton ætlar að taka.
Marco Silva vill ekki missa of marga miðjumenn en félagaskiptaglugginn lokar í dag.