Grænt te er allra meina bót, eða svo gott sem. Prófaðu að fá þér bolla strax í dag.
Í grænu tei eru andoxunarefni sem eru góð fyrir líkamann.
Grænt te getur hjálpað til við að ráðast á bakteríur í munninum og þar af leiðandi verður andardrátturinn ferskari.
Andoxunarefnin hjálpa til við að láta húðina glansa.
Í grænu tei eru efni og vítamín sem hjálpa til við góðan og sterkan hárvöxt.
Grænt te hjálpar meltingunni í gang og getur þar af leiðandi verið megrandi.
Þegar bjúgur safnast fyrir á líkamanum er gott að drekka grænt te til að losna við vökvann.
Þeir sem drekka grænt te á hverjum degi geta búist við því að fá sjaldnar kvef en þeir sem ekki gera það að venju sinni.
Grænt te getur hjálpað nöglunum að vaxa betur og vera heilbrigðari.