Kvikmyndin Lof mér að falla, hlaut aðalverðlaunin á Ramdam kvikmyndahátíðinni sem lauk nú í kvöld í Belgíu.
Birgir Örn Steinarsson, annar handritshöfunda myndarinnar var staddur á hátíðinni um helgina. Baldvin Z, er einnig handritshöfundur, auk þess að vera leikstjóri hennar.
Myndin hefur hlotið mikið lof, bæði áhorfenda og gagnrýnenda um allan heim og þegar uppskorið nokkur verðlaun á erlendum kvikmyndahátíðum.