Anthony Martial sóknarmaður Manchester United hefur beðið umboðsmann sinn um að klára nýjan samning við félagið sem fyrst.
Martial lét umboðsmann sinn vita að hann vildi ólmur framlengja, stuttu eftir að Jose Mourinho var rekinn frá félaginu.
Martial leið ekki vel undir stjórn Mourinho en hefur fengið stórt hlutverk undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.
Martial er að krota undir nýjan fimm ára samnnig sem mun færa honum 150 þúsund pund í laun á viku. Hann á bara rúmt ár eftir af samningi sínum núna og hefði líklega reynt að fara næsta sumar ef Mourinho hefði haldið starfinu.
Martial kom til United frá Monaco árið 2015 en það var Louis van Gaal festi kaup á honum. Martial er 23 ára gamall.