Ungur drengur í Ástralíu, trúð ekki því sem hann sá þegar foreldrar hans sendu honum mynd af sér í lest á leið til Lundúna.
Lestin var að fara frá Manchester en talsverð læti voru á fyrsta farrými lestarinnar. Lætin komu frá Paul Pogba og Nemanja Matic, leikmönnum Manchester United.
Kapparnir voru að spila Uno, sem hefur náð miklum vinsældum á meðal knattspyrnumanna á ferðalagi.
Til að biðjast afsökunar á þeim látum, buðu þeir fólkinu í kringum sig um að taka mynd. Eldri hjón, vissu ekkert hverjir þeir voru. Þau þáðu hins vegar myndina.
Myndina sendu þau svo á son sinn í Ástralíu sem trúði ekki því sem hann sá, hann var hneykslaður að foreldrar hans vissu ekki hverjir þetta voru.
,,Það sem gerir þetta slæmt pabbi er að Paul Pogba bað þig um að taka mynd af sér,“ sagði sonurinn.
Hann deildi samskiptum sínum við þau á Twitter og má sjá það besta hér að neðan.