Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United, var handtekinn í Washington í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Bandarískir fjölmiðlar keppast við að fjalla áfram um málið en Rooney var handtekinn á flugvellinum sem er í Washington.
Rooney hafði verið í Sádí Arabíu og horft á kappakstur en var svo handtekinn á flugvellinum vegna ölvunnar á almannafæri. Einnig er greint frá því að Rooney hafi blótað mikið er hann var drukkinn og var alls ekki til fyrirmyndar.
Rooney ættu flestir að þekkja en hann lék lengi með United og svo síðar Everton. Hann spilar í dag með DC United í MLS-deildinni. Stjórnarmenn MLS deildarinnar eru sagðir brjálaðir enda sér deildin að hluta til um að borga stjörnum hennar laun.
Handtakan hefur ekki mikil áhrif á líf Rooney sem var mættur út á lífið í Los Angeles í gær. Þar fékk hann sér í glas með leikmönnum DC United.
Rooney er eitt stærsta nafnið í MLS deildinni og fylgja ljósmyndarar honum hvert sem er, hann getur því ekki stungið niður einum bjór án þess að fjölmiðlar fjalli um málið.