fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fréttir

Varaformaður stjórnar seldi tæplega tvö prósent í Kviku

Finnur Reyr seldi hluta af bréfum sínum – Forstjóri ÍV seldi 1,6 prósenta hlut fyrir um 110 milljónir

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 22. desember 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Finnur Reyr Stefánsson, fjárfestir og varaformaður stjórnar Kviku fjárfestingarbanka, seldi hluta af bréfum sínum í bankanum þegar hjónin Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Örn Þórðarson, fyrrverandi eigendur Skeljungs, og fjárfestirinn Sigurður Bollason keyptu í lok síðasta mánaðar samanlagt um fimmtán prósenta hlut í Kviku. Fjárfestingarfélagið Snæból ehf., sem er í eigu Finns Reyrs og eiginkonu hans, Steinunnar Jónsdóttur, seldi þá 1,87 prósenta hlut í bankanum. Þau eru hins vegar eftir sem áður á meðal stærstu hluthafa Kviku með 7,32 prósenta hlut í gegnum eignarhald sitt á félaginu Siglu, sem er jafnframt í eigu Tómasar Kristjánssonar, viðskiptafélaga þeirra.

DV greindi frá því 2. desember síðastliðinn að hjónin Svanhildur og Guðmundur og Sigurður Bollason, stærstu einkafjárfestarnir í hluthafahópi tryggingafélagsins VÍS, hefðu fjárfest í bankanum nokkrum dögum áður en tilkynnt var um að stjórnir Kviku og Virðingar hefðu undirritað viljayfirlýsingu um að hefja undirbúning að samruna félaganna. Samkvæmt uppfærðum hluthafalista Kviku eru Svanhildur og Guðmundur nú þriðju stærstu hluthafar bankans með 8,06 prósenta hlut í gegnum félagið K2B fjárfestingar. Félagið Grandier ehf., sem er í eigu Sigurðar, er hins vegar sjöundi stærsti hluthafi Kviku með 7,05 prósenta hlut. Kaupverð þessara tveggja félaga á ríflega fimmtán prósenta hlut í bankanum nam samanlagt um milljarði króna.

Bankinn seldi eigin bréf

Á meðal þeirra sem seldu hluti sína í Kviku til félags hjónanna og Sigurðar, eins og áður hefur verið upplýst um í DV, var eignaumsýslufélagið Klakki sem átti 3,12 prósenta hlut auk þess sem ýmsir fyrrverandi starfsmenn Straums fjárfestingarbanka, sem sameinaðist MP banka undir nafninu Kviku sumarið 2015, seldu bréf sín í bankanum. Sigþór Jónsson, sem gegnir núna starfi forstjóra Íslenskra verðbréfa, seldi þannig rúmlega 1,6 prósenta hlut sinn í Kviku sem hann átti í gegnum félagið Salvus. Kaupverðið á bréfunum í Kviku var á genginu rúmlega einn miðað við áætlað eigið fé bankans í árslok 2016, sem verður að óbreyttu um 6,6 milljarðar króna, og því hefur Sigþór fengið um 110 milljónir króna fyrir sinn hlut í bankanum.

Eftir að Snæból seldi bréf sín í Kviku eiga Finnur Reyr og eiginkona hans, ásamt Tómasi Kristjánssyni, 7,32 prósenta hlut í bankanum, í gegnum félagið Siglu.
Fjárfestir Eftir að Snæból seldi bréf sín í Kviku eiga Finnur Reyr og eiginkona hans, ásamt Tómasi Kristjánssyni, 7,32 prósenta hlut í bankanum, í gegnum félagið Siglu.

Þá sýnir nýr hluthafalisti Kviku jafnframt að bankinn seldi sín eigin bréf sem námu um 2,7 prósenta hlut í bankanum. Fyrir þá sölu átti Kvika tæplega fjögurra prósenta hlut í sjálfum sér. Þau bréf höfðu að stærstum hluta komist í hendur bankans eftir að samkomulag náðist fyrr á þessu ári um að Kvika myndi kaupa samanlagt um 2,5 prósenta hlut sem var í eigu Haraldar I. Þórðarsonar, framkvæmdastjóra Fossa markaða, og Steingríms Arnars Finnssonar, forstöðumanns markaða hjá Fossum. Haraldur og Steingrímur höfðu áður verið lykilstarfsmenn í markaðsviðskiptum hjá Straumi fjárfestingarbanka en létu af störfum þar í ársbyrjun 2015 og stofnuðu í kjölfarið verðbréfafyrirtækið Fossa.

600 milljónir til hluthafa

Í aðdraganda sameiningar Kviku og verðbréfafyrirtækisins Virðingar stendur til að lækka eigið fé Kviku um 600 milljónir og greiða þá fjármuni út til hluthafa bankans. Eftir samruna félaganna munu hluthafar Kviku eiga 70 prósenta hlut í sameinuðu félagi en hluthafar Virðingar 30 prósent. Síðastliðinn mánudag sendi Kvika síðan frá sér tilkynningu þar sem sagði að stjórnir félaganna hefðu náð samkomulagi um helstu skilmála í tengslum við fyrirhugaðan samruna með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakannana og samþykki hluthafafunda og eftirlitsaðila. Í byrjun nýs árs hefst vinna við áreiðanleikakannanir og viðræður um nánari útfærslu á sameiningu félaganna.

Boðaður samruni fjármálafyrirtækjanna á sér nokkurn aðdraganda en DV greindi fyrst frá því þann 21. október að Virðing hefði gert kauptilboð, með fyrirvara um fjármögnun, í hlutabréf í Kviku með það að markmiði að sameina félögin. Stjórn Kviku taldi aftur á móti ekki ástæðu til að koma því tilboði áleiðis til hluthafa enda væri það fjarri því að vera nægjanlega hagstætt. Tæplega mánuði síðar kom Virðing með nýtt og endurbætt tilboð í allt hlutafé Kviku. Í bréfi sem stjórn Kviku sendi til hluthafa kom fram að hún mælti sömuleiðis ekki með tilboðinu, þar sem Virðing væri metið alltof hátt í samanburði við Kviku, heldur taldi hún réttara að félögin yrðu sameinuð á grundvelli þess að Kvika gerði hluthöfum Virðingar kauptilboð í bréf þeirra. Niðurstaðan var að lokum hins vegar sem fyrr segir sú að eigið fé Kviku yrði lækkað um 600 milljónir króna með útgreiðslu til hluthafa sem myndu í kjölfarið eiga sjötíu prósenta hlut í sameinuðu félagi.

Stærstu hluthafar Kviku í dag eru Lífeyrissjóður verslunarmanna með 9,6 prósenta hlut og félagið Brimgarðar ehf. með 8,73 prósenta hlut en það er í eigu systkinanna Gunnars Þórs, Guðnýjar Eddu, Halldórs Páls og Eggerts Árna Gíslabarna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ari Hermóður sakfelldur fyrir fjárdrátt

Ari Hermóður sakfelldur fyrir fjárdrátt
Fréttir
Í gær

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks
Fréttir
Í gær

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu