fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024

Er braggamálið frávik ?

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 14. janúar 2019 16:21

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Mynd:DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að nú sé lögð mikil áhersla á það hjá meirihlutanum í Ráðhúsi Reykjavíkur, að nota orðið „frávik“ um braggamálið. Heyra má þetta í orðræðu borgarstjóra, formanns borgarráðs, borgarfulltrúa meirihlutans, sem og ritmáli í tilkynningum borgarinnar.

Þar segir að unnið sé að úrbótum í kjölfar braggaskýrslunnar og má sjá orðið „frávik“  nefnt alls fjórum sinnum þegar hefði mátt nota „klúður“, „misferli“ eða spilling“ í staðinn. En vitaskuld eru slík orð ekki notuð á opinberu bréfsefni borgarinnar, enda felst í því staðfesting á að eitthvað misjafnt hafi átt sér stað, sem orðið „frávik“ gerir ekki.

Með þessari orðanotkun er auðvitað vísvitandi verið að gera lítið úr braggamálinu. Samkvæmt skilgreiningu er orðið „frávik“ aðeins lítið hliðarspor, undantekning þar sem vikið er frá einhverskonar reglu.

Í skýrslu innra eftirlits Reykjavíkurborgar um braggann er orðið „frávik“ alls notað 16 sinnum, en aldrei í sömu merkingu og Dagur B. Eggertsson, tilkynningar Reykjavíkurborgar, eða orðræða meirihlutans gerir. Í skýrslunni er orðið notað með mun þrengri hætti, við skilgreiningar á aðgreindum málum.

Nú er ekki verið að fullyrða að það sé reglan hjá borginni að fara langt fram úr kostnaðaráætlunum, en bragginn getur hvergi nærri talist vera frávik.

Orðið á götunni er að „frávik“ sé einmitt ekki rétta orðið, þar sem mýmörg önnur verkefni Reykjavíkurborgar hafa farið langt framúr upphaflegum kostnaði, auk þess sem ýmsum spurningum er enn ósvarað varðandi braggamálið, líkt og Hallur Símonarson, innri endurskoðandi borgarinnar, hefur sjálfur viðurkennt.

Í aðeins sex verkefnum á vegum borgarinnar hefur framkvæmdarkostnaður farið alls 1,348 milljónum fram úr áætlun.

Von er á skýrslu innri endurskoðunar um sum þeirra mála á næstu vikum.

Orðið á götunni er að sú skýrsla verði einnig í dekkri kantinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Var leikmaður Liverpool að skjóta á Klopp? – ,,Aldrei verið ánægðari“

Var leikmaður Liverpool að skjóta á Klopp? – ,,Aldrei verið ánægðari“
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Eyddu 8-9 milljónum í brúðkaupið en sjá ekki eftir því

Eyddu 8-9 milljónum í brúðkaupið en sjá ekki eftir því
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Eyja með gömlu hervirki til sölu – Fimmtán draugar búa þar

Eyja með gömlu hervirki til sölu – Fimmtán draugar búa þar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Slot gefur sama svarið: ,,Megið halda áfram að reyna“

Slot gefur sama svarið: ,,Megið halda áfram að reyna“