Jurgen Klopp, stjóri Liverpool var besti stjórinn í ensku úrvalsdeildinni í desember.
Klopp er að vinna gott starf á Anfield og er í bílstjórasætinu um að vinna ensku úrvalsdeildina.
Liverpool er með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar, sá þýski gæti verið að takast hið ómögulega.
Virgil Van Dijk varnarmaður Liverpool var besti leikmaður deildarinnar í desember.
Hollendingurinn hefur reynst Liverpool frábærlega, hann hefur breytt varnarleik liðsins.