fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Vændishús var opnað við hliðina á húsi Eriks – „Skiptir engu máli, húsið mitt er hvort sem er óseljanlegt“

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 11. janúar 2019 06:28

Sviðsett mynd

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru líklega ekki margir sem væru sáttir við að fá vændishús í næsta nágrenni við heimili sitt og hvað þá ef það væri í raðhúsinu við hliðina. Það má eflaust reikna með ákveðnu ónæði af slíkri starfsemi og þess utan hlýtur það að draga úr sölumöguleikunum á húsum í nágrenninu.

En Erik Brogaard, sem hefur búið í útjaðri Ølgod á Jótlandi í Danmörku undanfarin 26 ár, kippir sér ekki mikið upp við að í raðhúsinu, sem er áfast húsi hans, er vændishús rekið og hefur verið síðustu tæpu tvo áratugi.

Eriki keypti húsið fyrir smotterí 1993 og er bara sáttur við sitt þrátt fyrir þessa óvenjulegu „atvinnustarfsemi“ í næsta húsi. Þegar nýr eigandi fékk húsið við hliðina fékk Erik að vita að þar yrðu stúlkur og vissi hann um leið hvað átt var við. Síðan þá hefur ljósaskilti með rauðum stöfum sýnt orðið „Open“ allan sólarhringinn alla daga ársins.

„Ég hafði aldrei neitt á móti því að fá vændishús þarna.“

Sagði Erik í samtali við JydskeVestkysten. Hann er nú á eftirlaunum og nýtur tilverunnar með hundinum sínum og nágrannarnir og starfsemi þeirra truflar hann ekki.

„Ég held að ég geti ekki selt húsið og það tengist vændishúsinu ekki neitt. Ég hefði hvort sem er ekki getað selt það. Það er umferðarþungur vegur við hliðina, háspennulínur og spennistöð í nágrenninu og maður fær ekki lán fyrir húsum hér.“

Hann segir að reksturinn við hliðina sé nú örugglega ekki nein gullnáma. Skipt hafi verið einu sinni um eigendur eftir að sá fyrri fór á hausinn og húsið var selt á uppboði. Erik segist ekki fygljast með aðsókninni að vændishúsinu en kemst samt sem áður ekki hjá því að vita aðeins hvað er á seyði þar því stofuveggurinn hans er það eina sem aðskilur húsin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 6 dögum

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort
Pressan
Fyrir 6 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin