Manchester United er í viðræðum við Ander Herrera um að framlengja dvöl hans hjá félaginu.
Samningur Herrera við United er á enda í sumar en félagið vill halda honum.
Þessi 29 ára miðjumaður kom til United í stjóratíð Louis van Gaal en hann hefur spilað vel eftir að Ole Gunnar Solskjær tók við.
Herrera er frá Spáni en hann hafði verið orðaður við sitt gamla félag, Athletic Bilbao.
Phil Jones, Ashley Young og Antonio Valencia verða samningslausir í sumar en óvíst er hvort framlengt verði við þá.