Skrifstofustjórar hjá Reykjavíkurborg, Hrólfur Jónsson og Ámundi V. Brynjólfsson, höfðu samráð um að brjóta reglur borgarinnar í Braggamálinu. Fram kemur í skýrslu Innri endurskoðanda um Braggamálið að reglur vegna mannvirkjagerðar hjá borginni hafi verið brotnar þegar kom að framkvæmdum við braggann, er greint frá samráði Hrólfs Jónssonar, þáverandi skrifstofustjóra Skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, og Ámundar V. Brynjólfssonar, skrifstofustjóra Skrifstofu framkvæmda og viðhalds um að brjóta reglur borgarinnar.
Samkvæmt reglum borgarinnar ætti braggaverkefnið að hafa verið fært frá Skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, SEA, yfir á Skrifstofu framkvæmda og viðhalds, sem er svið innan Umhverfis og skipulagssviðs, USK. Í tölvupóstssamskiptum á milli Hrólfs og Ámundar kemur fram hvernig þeir komast að þeirri niðurstöðu að verkefnið eigi að vera á borði SEA. Hrólfur tekur sérstaklega fram í póstinum að samkvæmt reglum eigi verkefnið að vera á borði USK. Þrátt fyrir að þeir viti að þeir séu að brjóta reglur borgarinnar taka þeir þessa ákvörðun.
Hrólfur skrifar í sínum tölvupósti til Ámunda.
„Nú er allt að fara af stað við Nauthólsveginn. Og þá vaknar spurningin hvort við eigum að flytja verkefnið til ykkar. Samkvæmt öllum verkferlum ætti það auðvitað ekki að vera spurning. En ég held að það gæti verið skynsamlegt að skrifstofan hér haldi utan um þetta til enda. En ég vil ekki ákveða að nema með þinni vitneskju.“
Ámundi svarar:
„Sammála að verkefnið verði í umsjón SEA“
Í samtali við DV segir Ámundi að honum og Hrólfi hafi þótt það heppilegra að Hrólfur tæki verkefnið að sér.
„Við erum í rauninni sammála um það að það sé heppilegra að verkefnið sé þar, heldur en það fari að flytjast yfir. Þrátt fyrir það að verkferlanir segi annað.“
Er það ekki eilítið furðuleg afstaða að brjóta starfsreglur Reykjavíkurborgar?
„Nei, ekki ef við yfirmenn beggja eininganna erum sammála um það. Þá lítum við nú á það og erum sammála um það að það sé heppilegra í þessu tilfelli og á þessum tíma.“
En nú voru þessi verkferlar gerðir til að forðast að svona mál, eins og braggamálið, komi upp ?
„Ég var sammála því á þessum tíma og mér þótti það skynsamlegt að verkefnið væri á Skrifstofu eigna og atvinnuþróunar.“
Þó það bryti á settum verklagsreglum borgarinnar ?
„Já, mér þótti það skynsamlegt. Við Hrólfur vorum báðir sammála um það, eins og kemur fram í póstinum hans. Á meðan við erum báðir sammála um það þá lít ég þannig á að það sé í samkomulagi okkar beggja.“
Þannig ef þið tveir ákveðið að brjóta reglur Reykjavíkurborgar þá er það í lagi ?
„Þú mátt ekki túlka þetta svoleiðis. Í þessu tilfelli og á þessum tíma þá þótti mér og Hrólfi það skynsamlegt að verkefnið væri áfram í umsjón Skrifstofu eigna og atvinnuþróunar.“
En aftur, það er bara brot á verklagsreglum, Innri endurskoðandi segir það í skýrslu sinni.
„Já allt í lagi, ef þú vilt túlka það þannig þá gerir þú það.“
Samkvæmt skýrslu Innri endurskoðanda um málið kemur fram að engin rök séu færð fyrir þeirri ákvörðun að Hrólfur haldi utan um verkefnið. Nokkrir viðmælenda sögðu í viðtölum við Innri endurskoðun að USK hefði ekki haft hug á að taka þetta verkefni þar sem frumkostnaðaráætlun, sem verkfræðistofan Efla gerði, um kostnað vegna braggans þótti of lág. Innri endurskoðun bætir við í skýrslu sinni að þessi ákvörðun hafi ekki bara verið brot á verklagsreglum borgarinnar heldur þvert á ákvæði þjónustusamnings milli tveggja sviðanna.
DV hefur ítrekað reynt að ná tali af Hrólfi Jónssyni en án árangurs.