Kvikmynd Ísoldar Uggadóttur, Andið eðlilega, er til sýnis á Netflix frá og með deginum í dag.
Myndin er sjáanleg á Norðurlöndum, Norður- og Suður-Ameríku, á Afríku og víða um Evrópu, þó ekki á Íslandi, en hér er hægt að sjá hana gegnum netleigur Símans og Vodafone.
Andið eðlilega er fyrsta íslenska bíómyndin sem sýnd er á Netflix, en áður hafa nokkrar íslenskar heimildamyndir birst þar sem og leiknar þáttaraðir, auk kvikmyndarinnar Malevolent sem Ólafur de Fleur gerði í Bretlandi og kom út á síðasta ári.
Uppfært:
Rangt var farið með fréttina eftir Klapptré og hefur fréttin nú verið leiðrétt og hér sömuleiðis, sjá neðangreint.
Ýmsar íslenskar bíómyndir hafa birst á Netflix á undanförnum árum, en aðgengi að þeim er mismunandi eftir löndum. Má þar nefna Mýrina, Hrúta, Eiðinn, Ég man þig, Hjartastein og Fúsa. Einnig hafa nokkrar íslenskar heimildamyndir birst þar sem og leiknar þáttaraðir, auk kvikmyndarinnar Malevolent sem Ólafur de Fleur gerði í Bretlandi og kom út á síðasta ári.
(Leiðrétting 7. janúar 2019: Þegar fréttin birtist var mishermt að Andið eðlilega væri fyrsta íslenska bíómyndin á Netflix. Þetta hefur verið leiðrétt og um leið er beðist velvirðingar á mistökunum.)