fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Jonas slapp lifandi úr lestarslysinu í Danmörku – Óvenjuleg hemlun lestarstjórans varð honum til lífs

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 4. janúar 2019 07:58

Lestarvagninn sem Jonas sat í.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég sat beint fyrir aftan ljósið. Rétt fyrir aftan staðinn sem flutningavagninn lenti á.“ Svona lýsir Jonas Dam staðsetningu sinni í farþegalestinni sem lenti á flutningavagni á Stórabeltisbrúnni í Danmörku á miðvikudaginn en átta létust í slysinu og sextán slösuðust, þar á meðal Jonas. Hægri handleggur hans brotnaði í slysinu og hann skarst víða á líkamanum.

Í samtali við BT lýsti hann þessu skelfilega slysi og aðdraganda þess. Eins og flesta daga fór hann um borð í lestina klukkan 7.25 í Nyborg en hann ætlaði til Kaupmannahafnar þar sem hann vinnur. Hann er vanur að setjast í fremsta vagninn og stendur því alltaf á sama stað á brautarpallinum þegar lestin kemur. En á miðvikudaginn gerðist svolítið sérstakt.

„Lestinni var ekið inn á lestarstöðina en lestarstjórinn hemlaði of snemma og því þurfti ég að ganga að lestinni.“

Þegar hann kom að fremsta vagninum ók lestarstjórinn af stað og færði lestina fram um nokkra metra. Þá var Jonas skyndilega við innganginn á öðrum og þriðja lestarvagninum. Hann fór því inn og beygði til hægri og gekk í átt að fremsta vagninum og ætlaði í fremsta vagninn eins og aðra daga. En það voru færri í lestinni þennan dag en venjulega og þegar hann sá laust sæti í næstfremsta vagninum settist hann í það, eins og alltaf vinstra megin því þá nær morgunsólin ekki að skína á hann.

Um fimm mínútum eftir að lestin ók frá Nyborg lestarstöðinn varð slysið.

„Ég heyrði hljóðin ekki svo vel því ég var með heyrnartól á höfðinu. Ég tók fyrst eftir þessu þegar lestin fór að hristast. Þetta gerðist á sekúndubroti. Rúðan sprakk yfir mig og lestinni var snarhemlað.“

Jonas og aðrir í vagninum áttuðu sig fljótt á að hér var um stórslys að ræða. Nær allar rúður voru brotnar, dyrnar höfðu þrýsts inn. Stór granítsteinn, sem var á lestarteinunum, var kominn inn á gólfið í vagninum. Ekki var hægt að opna dyrnar inn í fremsta vagninn og í hinum enda vagnsins lá lífvana maður.

Lestarvagninn sem Jonas sat í.

Farþegarnir reyndu að leita skjóls undan vindinum og byrjuðu að hringja til að láta vita af sér. En það gátu ekki allir hringt.

„Ég sá einn liggjandi og þrír veittu honum skyndihjálp en það var ekki hægt að gera mikið fyrir hann.“

Fljótlega komu fyrstu björgunarmenn á vettvang og byrjað var að koma farþegunum frá borði. BT hefur eftir Jonasi að hann sé fyrst núna byrjaður að átta sig á hvað gerðist. Hann slapp vel með handleggsbrot og skrámur og þakkar sínu sæla fyrir að heppnin var með honum þennan dag.

Þessi mynd var tekin af hönd Jonasar skömmu eftir slysið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 5 dögum

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort
Pressan
Fyrir 6 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin