Ragga Nagli er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari. Á Facebook heldur hún úti vinsælli síðu þar sem hún birtir reglulega pistla um hreyfingu, mataræði og fleira.
„Hvernig ferðu að því að vera alltaf svona hress?“
„Þú ert aldrei þreytt“Spurði góður vinur…..
Ó ef þú bara vissir elsku kallinn minn….
Ef Facebook síða Naglans er skoðuð lítur túttan út fyrir að vera með sinnep í rassinum.
Piparrót í handarkrikunum.Hangandi á hurðarhúninum þegar ræktin opnar.
Urlandi fersk eins og nýbökuð normalbrauðsneið úr bakaríi Suðurvers.En það er glimmerprump og glansmynd.
Facebook hefur ekki birt þér síþreytuna sem hefur herjað á skrokkinn undanfarin tvö ár.
Dimm þoka í heilanum
Vökustaurar á augnlokin til að komast í gegnum daginn.
Þreyta á ólympískan mælikvarða
Orkuleysi á Richterskala.Dagarnir þegar er erfitt að vera fullorðinn.
Ryksugun óyfirstíganlegt verkefni.
Að velja kvöldmatinn eins og að skipuleggja fund í Sameinuðu þjóðunum.Facebook birtir þér ekki morgnana þegar vaknað eins og borðtuska á Glaumbar þrátt fyrir 8 tíma svefn.
Dagarnir þar sem Naglinn barðist við tárin við það eitt að labba tröppurnar í ræktinni.
Mætt í ræktina af skyldurækni frekar en löngun.
Ætti að vera heima að sofa.
Sársaukaþröskuldurinn lágur.
Æfingar því eins og píslarganga Krists.
Bubbi og Egó og Fjöllin hafa vakað á rípít til að þræla sér í gegnum settin.Kvíðahnúturinn sprottið eins og njóli á fjósvegg
Frjór jarðvegur fyrir neikvæðar hugsanir.
Ekki-nógan fengið að grassera.Forseti vor gerði að umtalsefni í nýársávarpi að fátt er eins fallvalt og læk á Facebook.
Samanburður veldur minnimáttarkennd.
Samanburður er þjófur gleðinnar.Instagram, Snapchat og Facebook er pastellitaður, filteraður og fótósjoppaður veruleiki.
Heimili vinanna eins og Hús og híbýli séu að koma í viðtal.
Flöffaðir púðar í Epalsófanum.
Nýbakaðar bollur skreyttar lífrænum graskersfræjum í Ittala skál á sprautulakkaða eldhúsborðinu.Samfélagsmiðlar blasa við hinu nakta auga eins og Astrid Lindgren bók.
Börn valhoppandi íklædd hvítum hörklæðnaði í glampandi sólskini.
Allir hlæjandi og glaðir, vinsælir og tanaðir, hamingjusamir og duglegir.Þú manst ekki hvenær þú skúraðir eldhúsgólfið.
Samsölubrauð hvílir tignarlega í brauðkassa úr IKEA.
Engin graskersfræ.
Þú átt mygluð chiafræ inni í skáp síðan í september þegar allt heilsustöff var á útsölu og þú ætlaðir að taka lífsstílinn í gegn….. en lífið þvældist fyrir þeim áformum.Við berum okkur saman við tvívíðar verur á skjánum, og teljum okkur trú um að bak við filterinn sé fullkominn æðri kynstofn sem vakni á morgnana með rennislétta, flekklausa húð og glansandi augu.
En þú færð bara að sjá leikritið, ekki kaosið baksviðs.
Þú færð ekki að sjá strögglið og innri hatursorðræðunina. Þreytuna. Bugunina. Örmögnunina
Kvíðann. Stressið. Niðurrifið. Neikvæðu hugsanirnar.Naglinn er ekki fullkominn frekar en aðrar mannlegar hræður og vill deila sögu sinni með fylgjendum sínum.
Án þess að skammast sín.
Berskjöldun er hugrekki.
Viðkvæmni er styrkur.Það er auðvelt að fá augun full af ryki frá stöðuuppfærslum um hamrandi hressleika og drífandi dugnað og efast um að þú sért að gera nóg.
En það prumpar enginn regnbogum alla daga.
Það knúsar enginn hvolpa í nýju rúmi úr Betra bak.Allir berjast við sína djöfla og drauga.
Heilsuspaðar á lendum netsins.
Mamma þín.
Snapchat stjarnan.
Hollywood leikkonan.
Alveg eins og þú.