Fjórir eru látnir og þrír alvarlega slasaðir eftir alvarlegt umferðaslys á Suðurlandsvegi. Sjö manns voru í bifreið sem fór fram af brúnni við Núpsvötn. Bifreiðin fór í gegnum vegrið og féll niður á áreyrirnar fyrir neðan. Ekki er vitað um nöfn þeirra látnu að svo stöddu. Fjórir fullorðnir og þrjú börn voru í bílnum.
Á vef Vísis kemur fram að aðkoma á slystað hafi verið skelfileg og er haft eftir sjónarvotti að um sé að ræða ferðamenn á bílaleigubíl.
Fréttin hefur verið uppfærð