fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fókus

Meistaraverk Chaplins í nýrri gerð á Stóra sviðinu

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 26. desember 2018 10:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á annan dag jóla frumsýnir Þjóðleikhúsið Einræðisherrann, meistaraverk Charlies Chaplins í nýrri leikgerð eftir Nikolaj Cederholm sem er einnig leikstjóri verksins.

Sigurður Sigurjónsson spreytir sig á hlutverki flækingsins og einræðisherrans en þess má geta að Sigurður hefur verið einlægur aðdáandi Chaplins frá unga aldri og á stórt safn af munum sem tengjast Chaplin. Það má með sanni segja að hlutverk flækingsins, sem verður einræðisherra fyrir röð mistaka, sé draumahlutverk Sigurðar. Aðrir leikarar í sýningunni eru Ilmur Kristjánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Oddur Júlíusson og Sigurður Þór Óskarsson. Tónlist er mikilvægur þáttur í sýningunni, og tónlistarstjórinn Karl Olgeirsson leikur á píanó af fingrum fram og sér um leikhljóð.

Listrænir stjórnendur sýningarinnar eru að mestu danskir en verkið var upphaflega sett upp á síðasta ári hjá Nørrebro-leikhúsinu í Kaupmannahöfn, þar sem það sló rækilega í gegn. Gagnrýnendur hlóðu lofi á sýninguna og naut hún mikilla vinsælda.

Einræðisherrann er heillandi, bráðskemmtileg og frumleg leiksýning um valdasýki, möguleika mennskunnar í trylltri veröld og baráttuna fyrir friði í heiminum.  Að venju er boðið upp á umræður eftir 6. sýningu, laugardagskvöldið 12. janúar.

Allar upplýsingar um sýninguna, myndir og leikskrá má finna hér.

Sem fyrr segir er Nikolaj Cederholm leikstjóri sýningar og höfundur leikgerðar, en meðleikstjóri hans er Malene Begtrup. Leikmynd gerir Kim Witzel, búningar eru eftir Line Bech, höfundur sviðshreyfinga er Anja Gaardbo og Kasper Ravnhøj sér um slapstick. Lýsing er í höndum Ólafs Ágústs Stefánssonar, Karl Olgeirsson er tónlistarstjóri og sér um píanóleik og leikhljóð, en Aron Þór Arnarsson sér um hljóðmynd. Magnea J. Matthíasdóttir þýddi leikgerðina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Perla leitaði sér aðstoðar sex árum eftir að dóttir hennar lést – „Endaði grátandi hjá heimilislækninum og sagði honum að ég gæti ekki meira“

Perla leitaði sér aðstoðar sex árum eftir að dóttir hennar lést – „Endaði grátandi hjá heimilislækninum og sagði honum að ég gæti ekki meira“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Deitið ætlaði að hafa hann að fífli – „Þessar stelpur héldu að ég væri vitlaus, sem ég er ekki“

Deitið ætlaði að hafa hann að fífli – „Þessar stelpur héldu að ég væri vitlaus, sem ég er ekki“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill birtir fyrstu paramyndirnar

Simmi Vill birtir fyrstu paramyndirnar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fall norskrar konu á Austurlandi vekur mikla kátínu – „Skóladæmi um hvernig á að detta með mýkt“

Fall norskrar konu á Austurlandi vekur mikla kátínu – „Skóladæmi um hvernig á að detta með mýkt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Níu ára sambandi Alberts og Guðlaugar lokið

Níu ára sambandi Alberts og Guðlaugar lokið
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan Ingi segir varasamt að fara á stefnumót á Íslandi – „Eins og að taka þátt í rússneskri rúllettu“

Raunveruleikastjarnan Ingi segir varasamt að fara á stefnumót á Íslandi – „Eins og að taka þátt í rússneskri rúllettu“