Já hefur tekið saman þær vörur sem landsmenn hafa mest verið að skoða fyrir jólin í vöruleit Já.is. Listarnir eru tveir, annars vegar þær vörur sem hafa oftast verið skoðaðar í vöruleitinni og hins vegar þær vörur sem hafa oftast verið settar í óskalista en allt vöruúrval íslenskra vefverslana er nú aðgengilegt á nýjum Já.is og á einum stað er nú hægt að leita í vöruúrvali tæplega 400 íslenskra vefverslana, sem er bylting fyrir íslenska neytendur.
Þegar listarnir eru bornir saman má sjá að margt er ólíkt með þeim. Snyrtivörur eru til að mynda áberandi á óskalistum landsmanna og eru Estée Lauder rakadropar sem vinna gegn ótímabærri öldrun í öðru sæti yfir þær vörur sem oftast eru settar í óskalista. Það þarf þó mögulega hugrekki til að láta þá rata í jólapakkann. Hins vegar tróna Apple AirPods heyrnartólin á toppnum á báðum listum og því allar líkur á að þau muni lenda í mörgum jólapökkum í ár og hitta beint í mark.
Mest skoðuðu vörurnar á lista Já:
Vörurnar sem oftast eru settar á óskalista á lista Já:
1. Apple AirPods
2. Estée Lauder Advanced Night Repair rakadropar sem vinna gegn öldrun
3. Apple Watch Series 4 úr
4. Glamglow Supermud Clearing maski
5. 66° Norður Jökla úlpa
6. Bose SoundSport Free heyrnartól
7. Lúxuspakki frá Eco By Sonya
8. Nike Power buxur
9. Urð Stormur ilmkerti
10. Marc Inbane brúnkusprey
500.000 vörur frá íslenskum vefverslunum eru nú aðgengilegar í leit á nýjum og endurbættum Já.is en nýr vefur var settur í loftið fyrir stuttu með það að markmiði að auðvelda Íslendingum að gera bestu kaupin. Í vöruleitinni geta notendur Já.is fundið og borið saman vörur og verð frá mismunandi söluaðilum, búið til óskalista og fengið sendar tilkynningar þegar vörur eru á tilboði eða þegar verð breytist. Óskalistunum er hægt að deila með vinum og vandamönnum, sem mun án efa létta mörgum lífið á síðustu metrunum fyrir jól.