Fólk á veraldarvefnum hefur sýnt fram á hið merkilegasta blæti fyrir græna, loðna fýlupúkanum Grinch, eða Trölla eins og hann hefur oft verið kallaður á íslensku.
Fréttaveitan Paper greinir meðal annars frá þessu en þar kemur fram staðfesting frá klámvefnum xHamster um að leit notenda að efnisorðinu „The Grinch“ hefur aukist um tíu þúsund prósent síðan í nóvember á þessu ári.
Líklegt þykir að nýja kvikmyndin með Benedict Cumberbatch hafi vakið eitthvað nýtt eða úr dvala. Myndin var frumsýnd í nóvember og er ljóst að fígúran hefur verið á vörum margra þetta árið, meira svo en venjulega. Hins vegar hefur Alex Hawkins, vefstjóri xHamster, viðurkennt að leitartölurnar hafi komið sér merkilega á óvart.
„Grinch hefur alltaf verið vinsæll hjá fjölskyldum,“ segir Alex, „en allt útlit er fyrir því að notendur vilji aðeins meiri nánd með persónunni í ár. Við hjá vefnum bjuggust alls ekki við að slík kynlífsfantasía væri til, en þarna er hún. Leitin hefur aukist stöðugt síðan um miðjan október og þeim fer aldeilis ekki minnkandi.“