Siggi Gunnars, þáttastjórnandi á K100 og vinsælasti spinningkennari landsins stendur fyrir spinningtíma í World Class Skólastíg Akureyri laugardaginn 22. desember kl. 12.
Tíminn er haldinn til styrktar börnum Elínar Helgu Hannesdóttur, sem lést í október.
Siggi mun kenna tímann, en hann kennir vinsælustu spinning tíma landsins í Laugum í hverri viku. Það er því ljóst að hér er í vændum skemmtilegur spinningtími og lofar Siggi miklu stuði og svita.
Skráning í tímann er í tímatöflu á www.worldclass.is.
„Það varð strax fullt í tímann,“ segir Siggi í samtali við DV og hvetur alla jafnframt til að skrá sig á biðlista, þar sem hann langar að vera með annan tíma strax á eftir ef það er í boði.
Komum saman, spinnum og styðjum við bakið á börnum Elínar Helgu í aðdraganda jóla. Í salnum verður tekið við frjálsum framlögum.
Þeir sem vilja leggja sitt af mörkum, en komast ekki í tímann, geta lagt inn á styrktarreikning, reikningsnúmerið er á nafni Guðrúnar, móður Elínar:
Kennitala: 130351-4849, rknr. 565-14-120443.