Sara Barðdal Þórisdóttir er ÍAK einkaþjálfari, heilsumarkþjálfi og stofnandi hiitfit.is. Hún hjálpar konum að verða heilsuhraustari og hamingjusamari í gegnum námskeið og þjálfanir á vegum hiitfit.is
Í desember er jóladagatal á síðunni þar sem þú færð hugmyndir af stuttum og raunsæjum skrefum til þess að halda líkamlegri og andlegri heilsu í góðu jafnvægi fram að jólum – og inn í nýja árið.
Glugginn fyrir 13. desember bauð upp á góða reglu:
Skref dagsins: Ekki borða neinn viðbættan sykur í dag! Afþakkaðu smákökurnar, gosið og konfektið.
Af hverju?
Með því að segja umhugsunarlaust já við öllu sem býðst í desember erum við að viðhalda taumhaldi sykurpúkans. Sykurneysla kallar nefnilega alltaf eftir meiri sykri og það þarf að brjóta vítahringinn upp með því að velja betri kost og minnka sykurinn. Hann veldur orkuleysi, þyngdaraukningu og er skaðlegri heilsunni þinni en þú gerir þér mögulega grein fyrir. Æfðu þig í að velja frekar mandarínur, döðlur eða aðra ávexti þegar þig langar í eitthvað sætt.
Skrá má sig í jóladagatalið hér.